mánudagur, desember 26, 2011

Eyðimerkurferð, eyðimerkurmatur, eyðimerkurþorp, eyðimerkur alt...



Loksins saman á ný
Síðan síðast er ég búin að ferðast frá Arambol í Góu til Delhi. Stelpurnar (Begga og Shahabeh) fóru frá Góu viku á undan mér, og ég tók svo flug til Jaipur (höfuðborg Rajasthan fylkis í norð-vestur Indlandi) og hitti þær þar. Í Indlandi finnst manni vika vera eins og heilt ár, það gerist svo margt, svo það var gott að hitta stelpurnar aftur og skiptast á ævintýrasögum um ferðir okkar.

Við eyddum degi í Jaipur (bleika borgin), fórum svo til Jodhpur (bláa borgin) og eyddum degi þar. Hér skoðuðum við allsskonar kastala og hof, og hittum fullt af vingjarnlegu fólki. Rajasthan er allt öðruvísi en Góa, fólkið og umhverfið er rólegra, loftslagið kaldara og byggingarnar fallegri.
Jaipur - Bleika borgin



Frá Jodhpur fórum við til Jaisalmer sem er kölluð „Gyllta borgin“ – allar byggingarnar eru byggðar úr gylltum sandstein, og glóa eins og gull þegar sólin skín á þær. Flestir sem fara til Jaisalmer fara þangað til að skoða eyðimörkina, og  það var líka það sem við vildum gera.





Eyðimerkurferðin

Við ákváðum að við vildum gista 3 nætur í eyðimörkinni. Eyðimörkin fyrir utan Jaisalmer er vinsæl meðal túrista, og við pöntuðum okkur þess vegna aðeins dýrari ferð og var þá farið með okkur eins djúpt inn í eyðimörkina og hægt var. Við hittum ekki eina einustu manneskju á ferðum okkar, nema fólkið í eyðimerkurþorpunum þegar við stoppuðum til að gefa kameldýrunum að drekka. Á ferðum okkar sáum við dádýr, ref, hrægamma, snák, fálka og páfugla. Við fórum langt inn í eyðimörkina, og síðasta daginn vorum við aðeins 15km frá Pakístönsku landamærunum, við gátum séð turninn sem herinn notar til eftirlits með landamærunum.

Sólin að setjast 15km frá landamærunum Indland-Pakistan
Leiðsögumaðurinn okkar Rhaman var algjör snillingur, og sá vel um okkur. Hann eldaði fyrir okkur morgunverð, hádegisverð og kvöldverð á hverjum degi, og te eins mikið og okkur listi. Eyðimerkurmaturinn var besti matur sem ég hef fengið síðan ég kom til Indlands.
Eyðimerkurgellur
Eyðimerkurísskápur
 Á hverju kvöldi bjó hann líka til rúm handa okkur. Hann gróf langa ferkantaða holu í sandinn, breyddi út teppi til að liggja á, teppi til að liggja undir og plast yfir teppin til að halda frá vindinum. Í kringum holuna setti hann úlfaldahnakkana, mat og annað sem við höfðum meðferðis, allt þetta þjónaði tilgangi skjólveggja. Það var ekkert þak yfir höfuðið og við sváfum undir fallegasta stjörnuhimni sem ég hef nokkurntíman séð, við sáum ALLAR stjörnurnar.
Eyðimörk Jaisalmer - sólin sest á bakvið fjöllin í Pakistan
Rhaman fór alltaf snemma að sofa, en áður en hann fór að sofa kveikti hann handa okkur bál úr eldiviðnum sem við söfnuðum saman yfir daginn. Við sátum í kringum bálið, drukkum bjórinn sem við höfðum tekið meðferðis (eftir að sólin var sest grófum við bjórinn í sandinn sem var ísskaldur og kældum hann þannig), skiptumst á sögum, hlógum og sungum.

Fyrsta kvöldið var ég að dást að stjörnunum og tók allt í einu eftir því að tunglið var hvergi sjáanlegt. Þegar við vorum að fara að sofa lýsti allt í einu allt upp, og við sáum tunglið, sem var rauðglóandi og ótrúlega skjært, koma upp á bakvið sanddýnurnar. Ég hef aldrei séð „tungl-upprás“ áður, og vissi ekki einu sinni að það væri til – og þessu magnaða augnabliki er ekki lýsandi með orðum.
Á morgnana vaknaði ég oftast fyrst af okkur hnátunum og horði á sólarupprásina á meðan ég drakk te sem Rhaman hafði búið til handa mér. Hann var alltaf vaknaður um 4 leitið, enda fór hann alltaf að sofa kl.19. Það var svalt á morgnana, og gott að hita sér við eldinn. Þegar sólin var komin upp, og heitara í lofti, skriðu hinar hnáturnar úr bólinu og stuttu síðar föggum pakkað saman og haldið á nýjan stað í eyðimörkinni.
Í eyðimörkinni er hvorki sturta né klósett, en maður gat alltaf fundið buska til að fela sig á bakvið. Og að gera það sem maður þarf að gera á bakvið runna í eyðimörkinni, sama hvort það sé nr.1 eða 2, er lúxus miðað við mörg klósett sem ég hef séð á ferðalaginu.
Kameldýrið mitt var eitthvað morgunfúlt síðasta daginn
Að eyða 4 dögum í eyðimörkinni var gott (ekki fyrir líkama) sálina, og það kom mér á óvart hversu mikla innri ró ég fann og hversu fljótt ég fann hana. Venjulega leiðist mér fljótt, en að gera nákvæmlega ekki neitt í 4 daga, nema að horfa, hlusta og njóta náttúrunnar, er eitt af því besta sem ég hef gert. En á kameldýr mun ég aldrei setjast á aftur, ég fór beint í nudd þegar við komum til Jaisalmer !

Mjallhvít

Að breyta Mjallhvíti í háegismat....











Horfum á sólarupprásina og borðum morgunmat í kuldanum


















Heimsókn í eyðimerkurþorpið Chatrell

Strákarnir á gistihúsinu okkar í Jaisalmer buðu okkur að koma í heimsókn í þorpið þeirra. Við þáðum að sjálfsögðu boðið og fórum þangað daginn eftir að við komum úr eyðimörkinni. Hér er vani að þegar manni er boðið í heimsókn að maður færi hússtandinum eitthvað eins og t.d. sætindi eða kjöt. Við keyptum þessvegna geit í þorpinu og var hún svo elduð í kvöldmatinn, handa okkur, fjölskyldu bræðranna og aðra þorpsbúa. Við horfðum á þegar geitinni var slátrað, sem var ekki sérlega fögur sjón, en áhugavert þó að sjá hvernig farið var að.

Í þorpinu voru mörg börn, og þau litu öll út fyrir að hafa aldrei fari í sturtu...sem var líklega staðreynd (ég fléttaði hárið á nokkrum stelpunum, og fann allsskonar dót í hárinu grafið). Þau hópuðust í kringum okkur og báðu okkur um nammi og penna. Við höfðum keypt hvort tveggja á leiðinni í þorpið, við reyndum að deila þessu út en börnin voru svo óróleg og virtust ekki skilja að það væri nóg handa öllum. Við ákváðum að bíða aðeins með að deila þessu út á meðan börnin myndu róa sig niður. Þau urðu aldrei neitt rólegri, og þegar ég tók nammipokann í annað sinn uppúr veskinu  mínu þá hoppuðu þau á mig og ég féll um koll. Ég sá enga aðra lausn en að henda namminu í burtu, og þau slóust um nammibitana og pokann þartil sumir voru komnir með blóðug sár. Villimennska er eina orðið sem mér dettur í hug til að lýsa ástandinu. Það tók mig stund að jafna mig eftir áfallið. Þetta var í fyrsta skipti á ævi minni sem ég fékk tilfinningu sem ég vil meina að hægt sé að lýsa með orðinu „menningarsjokk“. Að sjá börn haga sér eins og dýr, klóra, ýta og lemja hvort annað og engum fannst neitt áhugavert við það (nema okkur)....
Börnin vildu öll láta taka myndir af sér, flétta á mér hárið, prófa myndavélina, prófa sólgleraugun mín, eiga eyrnalokkana mína og hálsmenin mín, og fá að sjá ofan í veskið mitt bara til að vera ALVEG VISS um að ég væri ekki að ljúga að nammið væri búið.
Á tímapunkti spurði ég hvort ég gæti fengið lánað klósett einhversstaðar. Fréttin dreyfðist fljótt um þorpið að ég þyrfti að pissa og var það mikið aðhlátursefni...mér var vísað á klósettið, sem var eyðimörkin í heild sinni. Í þessu 200 manna þorpi er ekki eitt einasta klósett, allir fara útí eyðimörkina til að gera þarfir sínar. Ég gekk að stæðsta tréinu sem ég fann, en allsstaðar var fólk sem beið spennt eftir því að sjá mig pissa....skyndilega þurfti ég ekki að pissa lengur.
Þegar sólin var að setjast kom systir bræðranna og pikkaði í öxlina á mér. Hún talaði enga ensku en ég skildi síðasta orðið í setningunni sem hún sagði við mig og það var „chapatti“ sem er gerð af brauði sem borðað er við allar máltíðir hér. Ég elti hana inn í lítinn moldarskúr, þarsem ég gat ekki staðið uppreist og skúrinn var fullur af reyk. Inni í skúrnum sat kona við eldstæði og bakka af deigi. Hún var að fletja út og steikja chapatti. Ég settist hjá henni og hóf að hjálpa til. Við spjölluðum helling, ég á ensku og hún á hindí..og svo hlógum við mikið því við skildum ekki hvor aðra. Áður en ég vissi af sat ég ein inni í „ofninum“ þeirra og steikti chapatti ofan í liðið.
Við settumst svo öll á gólfið í einu einbýlishúsinu (20fm kofi með einu herbergi) og borðuðum geitina góðu og drukkum te.
Á leiðinni tilbaka til Jaisalmer fékk ég far á mótorhjólinu hans Jhonny sem er einn bræðranna. Það var svalt í lofti og stjörnuhimininn var fallegur...hann keyrði eins hægt og hann gat og bað mig um að ekki yfirgefa Jaisalmer daginn eftir, að ég væri svo sérstök og að hann myndi sakna mín svo mikið þegar ég færi. Daginn áður hafði bróðir hans sagt mér sögu um dreng úr þorpinu þeirra sem kynnst hafði stúlku frá Ástralíu, gifst henni og lifði nú góðu lífi þar. Ég held þá dreymi alla um svipað, ég var ekki lengi að pakka í bakpokann og láta mig hverfa...

Annað sem hefur gerst síðustu vikur:

  •  Ég þurfti svo svakalega að pissa þegar við vorum komnar í næturrútuna sem fór með okkur frá Jaipur til Jodhpur – ég hoppaði út og spurði eftir klósetti, mér var fylgt inn í dimma bakgötu og inn á rútubókunarskrifstofuna (sem ekkert hafði verið gert fyrir síðan hún var byggð árið 1723). Hér var mér vísað inn á skítugt klósett þarsem aðeins var pissuskál fyrir karlmenn. Í sakleysi mínu fór ég fram aftur og spurði hvar kvennaklósettið væri, af handahreyfingunum að dæma skildist mér að þetta væri eina klósettið sem var í boði. Ég ákvað að ég yrði þá bara að láta þetta ganga upp einhvernveginn og ekki dó ég ráðalaus...í einu horninu sá ég fötu...pissuskálin var næstum því í axlarhæð og því miður get ég ekki pissað uppávið, svo fatan vann. Já, ég pissaði í fötu !
  • Ég fór til Agra – og er líklega fyrsta manneskja mannkynssögunnar sem þangað hefur farið og EKKI séð Taj Mahal...það er lokað á föstudögum, einhvernveginn fór það framhjá okkur...svo við ætlum að skella okkur í dagsferð þangað frá Delhi einhverntímann á næstu dögum
  • Ég týndi gsm-símanum mínum í eyðimörkinni.
  • Ég bjó til heimatilbúna pizzu og steikti í ofni – Indian style. „Ofninn“ var gasgrill með pönnu að loki.
  • Ég fór til spámanns og spákonu, í sitthvorri borginni, og þau sögðu mér bæði margt af því sama – t.d. að þegar ég er farin að nálgast fertugsaldurinn muni ég búa í fallegu húsi við hafið og að guð muni gefa mér 4 tækifæri til að eignast börn.
  • Ég bauð Babú, sem sótti okkur í eyðimörkina pásu frá akstrinum, og við Begga fengum að prófa að keyra jeppann hans.
  • Begga mjólkaði geit....uppí munninn á sér...og fannst mjólkin góð.

Jólunum eyddum við á fallegu 5 stjörnu hóteli í Delhi, það var erfitt að yfirgefa það í morgun. En núna erum við í sentrum af Delhi (eða við höldum það allavega). Hér eru mikil læti, fullt af óheiðarlegu fólki, og pissu og skítafíla allsstaðar. Við eigum flug til Bangkok snemma morguns 31.desember og bíðum spenntar eftir að komast í hitann, hér er heldur kalt. Við erum ekki með neitt plan fyrir næstu daga, en eins og indverjarnir segja við okkur stöðugt : „Everything is possible“ (allt er mögulegt). Svo vonandi munu næstu dagar hafa eitthvað spennandi í vændum fyrir okkur ! 

fimmtudagur, desember 08, 2011

Nótt í frumskóginum

Ég yfirgaf Green Lion (samtökin sem ég var að vinna fyrir) fyrir 10 dögum síðan, 4 dögum fyrr en áætlað. Vil segja meira frá vikunum sem ég var þar, en í dag langar mig að segja ykkur frá nóttinni minni í frumskóginum.

Fyrir nokkrum dögum síðan fóru ég og tvær enskar stelpur (sem ég kynntist í síðust viku) í göngutúr í frumskóginn. Okkur langaði að sjá Banji-tréið sem átti að vera svo fallegt. Við gengum inn í frumskóginn og á leiðinni upp að tréinu hittum við indverskan mann. Hann gekk með okkur og sagði okkur sögur um frumskóginn og fólkið sem býr í honum. Eftir ca 10 mínútna göngu komum við að rjóðri þarsem búið var að hengja upp teppi í allsskonar litum í tréin. Rasj sagði okkur að þarna byggji þýsk kona, og að hún væri búin að búa þarna í 5 ár. Litríku teppin þjóna tilgangi veggja. Spennandi að sjá.

Að koma upp að tréinu var sérstök upplifun. Tréið er meira en 1000 ára gamalt, risa stórt og ótrúlega fallegt. Uppvið tréið er mynd af hindú guðinum Ganesh, kertaljós og blóm. Hindú alteri. I miðjunni á sléttum moldarhring undir tréinu er eldstæði. Frumskógar fólkið hldur lífi í eldinum allan sólarhringinn, og engu má kasta á bálið - tréið og eldstæðið er heilagt. Við sátum undir tréinu í hálftíma og töluðum við Rasj og fleira "frumskógar fólk". Mér var boðið að gista undir tréinu. Mennirnir sögðu mér að fólk myndi koma upp að tréinu eftir myrkur, spila á trommur og gítar, og svo falla í svefn undir tréinu. Ég lét sko ekki spyrja mig tvisvar, ég ákvað að slá til og játaði boðinu.


Einn mannana blandar sér í chillum
 (indversk útgáfa af hasspípu)
Ég gékk í gegnum frumskóginn í myrkrinu, og var komin upp að heilaga tréinu kl.22 um kvöldið. Frumskógurinn er allt annar í myrkri enn í dagsljósi. Maður sér alls ekki neitt og heyrnin og lyktarskynið verður sterkara. Maður finnur fyrir nálægð dýranna og heyrir í þeim, en maður sér þau ekki. Virkilega sérstakt. Undir tréinu hitti ég einn af mönnunum sem ég hafði hitt fyrr um daginn. Hann sagði mér að hann væri búinn að búa í frumskóginum í einn mánuð og viku. Hann hafði verið rændur og eins og hann sagði sjálfur (oft og mörgum sinnum!) "They took my identity, my backpack, my money, my idendity, my everything!" . Hann sagði að frumskógurinn hefði bjargað honum, og að hér hefði hann allt sem hann vantaði "frumskógar mat, frumskógar vatn, frumskógar eld, frumskógar allt". Hann sýndi mér frumskógar eldhúsið og frumskógar klósettið (ca 40 fm stórgrítt rjóður), frumskógar vaskinn og frumskógar þvottavélina. Ég fór með honum að sækja vatn úr frumskógar vaskinum, sem var lítil spræna af vatni sem kom útúr fjallinu. Hann sýndi mér hvernig hann hreinsaði laufblöðin uppúr vatninu og reyndi að halda rykinu í burtu. Við suðum vatnið á bálinu og drukkum svart te. Nokkra tíma inn í nóttina sagði Edvin (frumskógar maðurinn) að við þyrftum meiri eldivið til að halda bálinu lifandi alla nóttina, og hann bauð mér með í eldiviðs leit. Ég vildi að sjálfsögðu ekki missa af neinu og þakkaði játandi. Við klifruðum upp í frumskógarfjallið og ég fékk kennslu í "frumskógar klifri/göngu/hoppi. Leitin sem ég hélt að yrði aðeins 5 mínútna ganga var orðin að 20 mínútna klifri uppávið, í kolniða myrkri. Frumskógarmaðurinn var ekki búinn að nefna neitt um eldivið og fór allt í einu að tala um að hann vildi sýna mér leyni staðinn sinn. Á þeirri stundu hugsaði ég "SHxT ! Ég er í frumskógi þarsem enginn heyrir til mín nema slöngurnar og aparnir, ég hoppa á milli steina með indverskum frumskógar manni sem ég hef ekki hugmynd um hvort ég get treyst, og enginn veit hvar ég er. Hvað í ands... var ég að hugsa?!" Ég sagði frumskógarmanninum að ég vildi bara sækja eldivið, að hann gæti frekar sýnt mér leynistaðinn í dagsljósi. Það kom í ljós að ég þurfti engar áhyggjur að hafa, Edvin er ofsalega góðhjartaður maður. Við sóttum eldiviðinn og fórum tilbaka að tréinu. Edvin bjó til meira te og bauð upp á köld hrísgrjón og grænmeti eldað á indverskan hátt. Við töluðum um allt á milli himins og jarðar, og hlustuðum á frumskógarhljóðin, og horfðum á störnurnar á milli trjánna. Við sváfum í kringum bálið með slöngunum, maurunum og uglu. Þegar ég vaknaði við að sólin skein í andlitið á mér á milli trjánna, heyrði ég tónlist. Við hlið mér sátu tveir menn, klæddir í slæðu í kringum mittið. Þeir voru báðir ljóshærðir með sítt krullótt hár, þeir spiluðu báðir á gítar. Þeir sungu og spiluðu tónlist á meðan ég rólega pakkaði saman hlutunum mínum og hafði gönguna tilbaka til menningannar.

Að sofa undir Banji tréi í miðjum frumskóginum er án efa ein af bestu upplifinum sem ég nokkurtíman hef átt. Tréið gefur frá sér stórt magn af súrefni og eftir aðeins þriggja tíma svefn var ég meira úthvíld en hvað ég hef verið í langan tíma.

Akkúrat núna er ég í Arambol, er búin að vera hér aðeins lengur en viku. Á morgun fer ég með flugi til Jaipur til að hitta Beggu og Shahabeh (hollenska vinkona okkar). Þaðan förum við til Jodhpur, og svo set ég stefnu á Jaisalmer þarsem ég ætla að ferðast á úlfalda inn í eyðimörkina og gista þar.






mánudagur, desember 05, 2011

Risaeðla í klósettinu.....

Er á leiðinni út í frumskóg til að sofa undir 400 ára gömlu tréi...en lofa, kemur blogg á næstu dögum....

Vídjó sem plástur á sárið...