mánudagur, desember 26, 2011

Eyðimerkurferð, eyðimerkurmatur, eyðimerkurþorp, eyðimerkur alt...



Loksins saman á ný
Síðan síðast er ég búin að ferðast frá Arambol í Góu til Delhi. Stelpurnar (Begga og Shahabeh) fóru frá Góu viku á undan mér, og ég tók svo flug til Jaipur (höfuðborg Rajasthan fylkis í norð-vestur Indlandi) og hitti þær þar. Í Indlandi finnst manni vika vera eins og heilt ár, það gerist svo margt, svo það var gott að hitta stelpurnar aftur og skiptast á ævintýrasögum um ferðir okkar.

Við eyddum degi í Jaipur (bleika borgin), fórum svo til Jodhpur (bláa borgin) og eyddum degi þar. Hér skoðuðum við allsskonar kastala og hof, og hittum fullt af vingjarnlegu fólki. Rajasthan er allt öðruvísi en Góa, fólkið og umhverfið er rólegra, loftslagið kaldara og byggingarnar fallegri.
Jaipur - Bleika borgin



Frá Jodhpur fórum við til Jaisalmer sem er kölluð „Gyllta borgin“ – allar byggingarnar eru byggðar úr gylltum sandstein, og glóa eins og gull þegar sólin skín á þær. Flestir sem fara til Jaisalmer fara þangað til að skoða eyðimörkina, og  það var líka það sem við vildum gera.





Eyðimerkurferðin

Við ákváðum að við vildum gista 3 nætur í eyðimörkinni. Eyðimörkin fyrir utan Jaisalmer er vinsæl meðal túrista, og við pöntuðum okkur þess vegna aðeins dýrari ferð og var þá farið með okkur eins djúpt inn í eyðimörkina og hægt var. Við hittum ekki eina einustu manneskju á ferðum okkar, nema fólkið í eyðimerkurþorpunum þegar við stoppuðum til að gefa kameldýrunum að drekka. Á ferðum okkar sáum við dádýr, ref, hrægamma, snák, fálka og páfugla. Við fórum langt inn í eyðimörkina, og síðasta daginn vorum við aðeins 15km frá Pakístönsku landamærunum, við gátum séð turninn sem herinn notar til eftirlits með landamærunum.

Sólin að setjast 15km frá landamærunum Indland-Pakistan
Leiðsögumaðurinn okkar Rhaman var algjör snillingur, og sá vel um okkur. Hann eldaði fyrir okkur morgunverð, hádegisverð og kvöldverð á hverjum degi, og te eins mikið og okkur listi. Eyðimerkurmaturinn var besti matur sem ég hef fengið síðan ég kom til Indlands.
Eyðimerkurgellur
Eyðimerkurísskápur
 Á hverju kvöldi bjó hann líka til rúm handa okkur. Hann gróf langa ferkantaða holu í sandinn, breyddi út teppi til að liggja á, teppi til að liggja undir og plast yfir teppin til að halda frá vindinum. Í kringum holuna setti hann úlfaldahnakkana, mat og annað sem við höfðum meðferðis, allt þetta þjónaði tilgangi skjólveggja. Það var ekkert þak yfir höfuðið og við sváfum undir fallegasta stjörnuhimni sem ég hef nokkurntíman séð, við sáum ALLAR stjörnurnar.
Eyðimörk Jaisalmer - sólin sest á bakvið fjöllin í Pakistan
Rhaman fór alltaf snemma að sofa, en áður en hann fór að sofa kveikti hann handa okkur bál úr eldiviðnum sem við söfnuðum saman yfir daginn. Við sátum í kringum bálið, drukkum bjórinn sem við höfðum tekið meðferðis (eftir að sólin var sest grófum við bjórinn í sandinn sem var ísskaldur og kældum hann þannig), skiptumst á sögum, hlógum og sungum.

Fyrsta kvöldið var ég að dást að stjörnunum og tók allt í einu eftir því að tunglið var hvergi sjáanlegt. Þegar við vorum að fara að sofa lýsti allt í einu allt upp, og við sáum tunglið, sem var rauðglóandi og ótrúlega skjært, koma upp á bakvið sanddýnurnar. Ég hef aldrei séð „tungl-upprás“ áður, og vissi ekki einu sinni að það væri til – og þessu magnaða augnabliki er ekki lýsandi með orðum.
Á morgnana vaknaði ég oftast fyrst af okkur hnátunum og horði á sólarupprásina á meðan ég drakk te sem Rhaman hafði búið til handa mér. Hann var alltaf vaknaður um 4 leitið, enda fór hann alltaf að sofa kl.19. Það var svalt á morgnana, og gott að hita sér við eldinn. Þegar sólin var komin upp, og heitara í lofti, skriðu hinar hnáturnar úr bólinu og stuttu síðar föggum pakkað saman og haldið á nýjan stað í eyðimörkinni.
Í eyðimörkinni er hvorki sturta né klósett, en maður gat alltaf fundið buska til að fela sig á bakvið. Og að gera það sem maður þarf að gera á bakvið runna í eyðimörkinni, sama hvort það sé nr.1 eða 2, er lúxus miðað við mörg klósett sem ég hef séð á ferðalaginu.
Kameldýrið mitt var eitthvað morgunfúlt síðasta daginn
Að eyða 4 dögum í eyðimörkinni var gott (ekki fyrir líkama) sálina, og það kom mér á óvart hversu mikla innri ró ég fann og hversu fljótt ég fann hana. Venjulega leiðist mér fljótt, en að gera nákvæmlega ekki neitt í 4 daga, nema að horfa, hlusta og njóta náttúrunnar, er eitt af því besta sem ég hef gert. En á kameldýr mun ég aldrei setjast á aftur, ég fór beint í nudd þegar við komum til Jaisalmer !

Mjallhvít

Að breyta Mjallhvíti í háegismat....











Horfum á sólarupprásina og borðum morgunmat í kuldanum


















Heimsókn í eyðimerkurþorpið Chatrell

Strákarnir á gistihúsinu okkar í Jaisalmer buðu okkur að koma í heimsókn í þorpið þeirra. Við þáðum að sjálfsögðu boðið og fórum þangað daginn eftir að við komum úr eyðimörkinni. Hér er vani að þegar manni er boðið í heimsókn að maður færi hússtandinum eitthvað eins og t.d. sætindi eða kjöt. Við keyptum þessvegna geit í þorpinu og var hún svo elduð í kvöldmatinn, handa okkur, fjölskyldu bræðranna og aðra þorpsbúa. Við horfðum á þegar geitinni var slátrað, sem var ekki sérlega fögur sjón, en áhugavert þó að sjá hvernig farið var að.

Í þorpinu voru mörg börn, og þau litu öll út fyrir að hafa aldrei fari í sturtu...sem var líklega staðreynd (ég fléttaði hárið á nokkrum stelpunum, og fann allsskonar dót í hárinu grafið). Þau hópuðust í kringum okkur og báðu okkur um nammi og penna. Við höfðum keypt hvort tveggja á leiðinni í þorpið, við reyndum að deila þessu út en börnin voru svo óróleg og virtust ekki skilja að það væri nóg handa öllum. Við ákváðum að bíða aðeins með að deila þessu út á meðan börnin myndu róa sig niður. Þau urðu aldrei neitt rólegri, og þegar ég tók nammipokann í annað sinn uppúr veskinu  mínu þá hoppuðu þau á mig og ég féll um koll. Ég sá enga aðra lausn en að henda namminu í burtu, og þau slóust um nammibitana og pokann þartil sumir voru komnir með blóðug sár. Villimennska er eina orðið sem mér dettur í hug til að lýsa ástandinu. Það tók mig stund að jafna mig eftir áfallið. Þetta var í fyrsta skipti á ævi minni sem ég fékk tilfinningu sem ég vil meina að hægt sé að lýsa með orðinu „menningarsjokk“. Að sjá börn haga sér eins og dýr, klóra, ýta og lemja hvort annað og engum fannst neitt áhugavert við það (nema okkur)....
Börnin vildu öll láta taka myndir af sér, flétta á mér hárið, prófa myndavélina, prófa sólgleraugun mín, eiga eyrnalokkana mína og hálsmenin mín, og fá að sjá ofan í veskið mitt bara til að vera ALVEG VISS um að ég væri ekki að ljúga að nammið væri búið.
Á tímapunkti spurði ég hvort ég gæti fengið lánað klósett einhversstaðar. Fréttin dreyfðist fljótt um þorpið að ég þyrfti að pissa og var það mikið aðhlátursefni...mér var vísað á klósettið, sem var eyðimörkin í heild sinni. Í þessu 200 manna þorpi er ekki eitt einasta klósett, allir fara útí eyðimörkina til að gera þarfir sínar. Ég gekk að stæðsta tréinu sem ég fann, en allsstaðar var fólk sem beið spennt eftir því að sjá mig pissa....skyndilega þurfti ég ekki að pissa lengur.
Þegar sólin var að setjast kom systir bræðranna og pikkaði í öxlina á mér. Hún talaði enga ensku en ég skildi síðasta orðið í setningunni sem hún sagði við mig og það var „chapatti“ sem er gerð af brauði sem borðað er við allar máltíðir hér. Ég elti hana inn í lítinn moldarskúr, þarsem ég gat ekki staðið uppreist og skúrinn var fullur af reyk. Inni í skúrnum sat kona við eldstæði og bakka af deigi. Hún var að fletja út og steikja chapatti. Ég settist hjá henni og hóf að hjálpa til. Við spjölluðum helling, ég á ensku og hún á hindí..og svo hlógum við mikið því við skildum ekki hvor aðra. Áður en ég vissi af sat ég ein inni í „ofninum“ þeirra og steikti chapatti ofan í liðið.
Við settumst svo öll á gólfið í einu einbýlishúsinu (20fm kofi með einu herbergi) og borðuðum geitina góðu og drukkum te.
Á leiðinni tilbaka til Jaisalmer fékk ég far á mótorhjólinu hans Jhonny sem er einn bræðranna. Það var svalt í lofti og stjörnuhimininn var fallegur...hann keyrði eins hægt og hann gat og bað mig um að ekki yfirgefa Jaisalmer daginn eftir, að ég væri svo sérstök og að hann myndi sakna mín svo mikið þegar ég færi. Daginn áður hafði bróðir hans sagt mér sögu um dreng úr þorpinu þeirra sem kynnst hafði stúlku frá Ástralíu, gifst henni og lifði nú góðu lífi þar. Ég held þá dreymi alla um svipað, ég var ekki lengi að pakka í bakpokann og láta mig hverfa...

Annað sem hefur gerst síðustu vikur:

  •  Ég þurfti svo svakalega að pissa þegar við vorum komnar í næturrútuna sem fór með okkur frá Jaipur til Jodhpur – ég hoppaði út og spurði eftir klósetti, mér var fylgt inn í dimma bakgötu og inn á rútubókunarskrifstofuna (sem ekkert hafði verið gert fyrir síðan hún var byggð árið 1723). Hér var mér vísað inn á skítugt klósett þarsem aðeins var pissuskál fyrir karlmenn. Í sakleysi mínu fór ég fram aftur og spurði hvar kvennaklósettið væri, af handahreyfingunum að dæma skildist mér að þetta væri eina klósettið sem var í boði. Ég ákvað að ég yrði þá bara að láta þetta ganga upp einhvernveginn og ekki dó ég ráðalaus...í einu horninu sá ég fötu...pissuskálin var næstum því í axlarhæð og því miður get ég ekki pissað uppávið, svo fatan vann. Já, ég pissaði í fötu !
  • Ég fór til Agra – og er líklega fyrsta manneskja mannkynssögunnar sem þangað hefur farið og EKKI séð Taj Mahal...það er lokað á föstudögum, einhvernveginn fór það framhjá okkur...svo við ætlum að skella okkur í dagsferð þangað frá Delhi einhverntímann á næstu dögum
  • Ég týndi gsm-símanum mínum í eyðimörkinni.
  • Ég bjó til heimatilbúna pizzu og steikti í ofni – Indian style. „Ofninn“ var gasgrill með pönnu að loki.
  • Ég fór til spámanns og spákonu, í sitthvorri borginni, og þau sögðu mér bæði margt af því sama – t.d. að þegar ég er farin að nálgast fertugsaldurinn muni ég búa í fallegu húsi við hafið og að guð muni gefa mér 4 tækifæri til að eignast börn.
  • Ég bauð Babú, sem sótti okkur í eyðimörkina pásu frá akstrinum, og við Begga fengum að prófa að keyra jeppann hans.
  • Begga mjólkaði geit....uppí munninn á sér...og fannst mjólkin góð.

Jólunum eyddum við á fallegu 5 stjörnu hóteli í Delhi, það var erfitt að yfirgefa það í morgun. En núna erum við í sentrum af Delhi (eða við höldum það allavega). Hér eru mikil læti, fullt af óheiðarlegu fólki, og pissu og skítafíla allsstaðar. Við eigum flug til Bangkok snemma morguns 31.desember og bíðum spenntar eftir að komast í hitann, hér er heldur kalt. Við erum ekki með neitt plan fyrir næstu daga, en eins og indverjarnir segja við okkur stöðugt : „Everything is possible“ (allt er mögulegt). Svo vonandi munu næstu dagar hafa eitthvað spennandi í vændum fyrir okkur ! 

fimmtudagur, desember 08, 2011

Nótt í frumskóginum

Ég yfirgaf Green Lion (samtökin sem ég var að vinna fyrir) fyrir 10 dögum síðan, 4 dögum fyrr en áætlað. Vil segja meira frá vikunum sem ég var þar, en í dag langar mig að segja ykkur frá nóttinni minni í frumskóginum.

Fyrir nokkrum dögum síðan fóru ég og tvær enskar stelpur (sem ég kynntist í síðust viku) í göngutúr í frumskóginn. Okkur langaði að sjá Banji-tréið sem átti að vera svo fallegt. Við gengum inn í frumskóginn og á leiðinni upp að tréinu hittum við indverskan mann. Hann gekk með okkur og sagði okkur sögur um frumskóginn og fólkið sem býr í honum. Eftir ca 10 mínútna göngu komum við að rjóðri þarsem búið var að hengja upp teppi í allsskonar litum í tréin. Rasj sagði okkur að þarna byggji þýsk kona, og að hún væri búin að búa þarna í 5 ár. Litríku teppin þjóna tilgangi veggja. Spennandi að sjá.

Að koma upp að tréinu var sérstök upplifun. Tréið er meira en 1000 ára gamalt, risa stórt og ótrúlega fallegt. Uppvið tréið er mynd af hindú guðinum Ganesh, kertaljós og blóm. Hindú alteri. I miðjunni á sléttum moldarhring undir tréinu er eldstæði. Frumskógar fólkið hldur lífi í eldinum allan sólarhringinn, og engu má kasta á bálið - tréið og eldstæðið er heilagt. Við sátum undir tréinu í hálftíma og töluðum við Rasj og fleira "frumskógar fólk". Mér var boðið að gista undir tréinu. Mennirnir sögðu mér að fólk myndi koma upp að tréinu eftir myrkur, spila á trommur og gítar, og svo falla í svefn undir tréinu. Ég lét sko ekki spyrja mig tvisvar, ég ákvað að slá til og játaði boðinu.


Einn mannana blandar sér í chillum
 (indversk útgáfa af hasspípu)
Ég gékk í gegnum frumskóginn í myrkrinu, og var komin upp að heilaga tréinu kl.22 um kvöldið. Frumskógurinn er allt annar í myrkri enn í dagsljósi. Maður sér alls ekki neitt og heyrnin og lyktarskynið verður sterkara. Maður finnur fyrir nálægð dýranna og heyrir í þeim, en maður sér þau ekki. Virkilega sérstakt. Undir tréinu hitti ég einn af mönnunum sem ég hafði hitt fyrr um daginn. Hann sagði mér að hann væri búinn að búa í frumskóginum í einn mánuð og viku. Hann hafði verið rændur og eins og hann sagði sjálfur (oft og mörgum sinnum!) "They took my identity, my backpack, my money, my idendity, my everything!" . Hann sagði að frumskógurinn hefði bjargað honum, og að hér hefði hann allt sem hann vantaði "frumskógar mat, frumskógar vatn, frumskógar eld, frumskógar allt". Hann sýndi mér frumskógar eldhúsið og frumskógar klósettið (ca 40 fm stórgrítt rjóður), frumskógar vaskinn og frumskógar þvottavélina. Ég fór með honum að sækja vatn úr frumskógar vaskinum, sem var lítil spræna af vatni sem kom útúr fjallinu. Hann sýndi mér hvernig hann hreinsaði laufblöðin uppúr vatninu og reyndi að halda rykinu í burtu. Við suðum vatnið á bálinu og drukkum svart te. Nokkra tíma inn í nóttina sagði Edvin (frumskógar maðurinn) að við þyrftum meiri eldivið til að halda bálinu lifandi alla nóttina, og hann bauð mér með í eldiviðs leit. Ég vildi að sjálfsögðu ekki missa af neinu og þakkaði játandi. Við klifruðum upp í frumskógarfjallið og ég fékk kennslu í "frumskógar klifri/göngu/hoppi. Leitin sem ég hélt að yrði aðeins 5 mínútna ganga var orðin að 20 mínútna klifri uppávið, í kolniða myrkri. Frumskógarmaðurinn var ekki búinn að nefna neitt um eldivið og fór allt í einu að tala um að hann vildi sýna mér leyni staðinn sinn. Á þeirri stundu hugsaði ég "SHxT ! Ég er í frumskógi þarsem enginn heyrir til mín nema slöngurnar og aparnir, ég hoppa á milli steina með indverskum frumskógar manni sem ég hef ekki hugmynd um hvort ég get treyst, og enginn veit hvar ég er. Hvað í ands... var ég að hugsa?!" Ég sagði frumskógarmanninum að ég vildi bara sækja eldivið, að hann gæti frekar sýnt mér leynistaðinn í dagsljósi. Það kom í ljós að ég þurfti engar áhyggjur að hafa, Edvin er ofsalega góðhjartaður maður. Við sóttum eldiviðinn og fórum tilbaka að tréinu. Edvin bjó til meira te og bauð upp á köld hrísgrjón og grænmeti eldað á indverskan hátt. Við töluðum um allt á milli himins og jarðar, og hlustuðum á frumskógarhljóðin, og horfðum á störnurnar á milli trjánna. Við sváfum í kringum bálið með slöngunum, maurunum og uglu. Þegar ég vaknaði við að sólin skein í andlitið á mér á milli trjánna, heyrði ég tónlist. Við hlið mér sátu tveir menn, klæddir í slæðu í kringum mittið. Þeir voru báðir ljóshærðir með sítt krullótt hár, þeir spiluðu báðir á gítar. Þeir sungu og spiluðu tónlist á meðan ég rólega pakkaði saman hlutunum mínum og hafði gönguna tilbaka til menningannar.

Að sofa undir Banji tréi í miðjum frumskóginum er án efa ein af bestu upplifinum sem ég nokkurtíman hef átt. Tréið gefur frá sér stórt magn af súrefni og eftir aðeins þriggja tíma svefn var ég meira úthvíld en hvað ég hef verið í langan tíma.

Akkúrat núna er ég í Arambol, er búin að vera hér aðeins lengur en viku. Á morgun fer ég með flugi til Jaipur til að hitta Beggu og Shahabeh (hollenska vinkona okkar). Þaðan förum við til Jodhpur, og svo set ég stefnu á Jaisalmer þarsem ég ætla að ferðast á úlfalda inn í eyðimörkina og gista þar.






mánudagur, desember 05, 2011

Risaeðla í klósettinu.....

Er á leiðinni út í frumskóg til að sofa undir 400 ára gömlu tréi...en lofa, kemur blogg á næstu dögum....

Vídjó sem plástur á sárið...


sunnudagur, nóvember 20, 2011

Veikindi, nýtt verkefni og myndir

Í dag ákvað ég að vera heima frá verkefninu. Ég er búin að vera mikið kvefuð, hóstandi, með smá hita og eyrnaverk í 6 daga núna, og held ég þurfi að hvíla mig allmennilega til að verða frísk.

Ég er að hugsa um að skifta um verkefni. Hinar stelpurnar sem vinna með mér á Mother Theresa ákváðu að hætta þar, og ég held að það verði of erfitt að sjá um þetta ein. Mér hefur verið boðið að vinna á sjúkrahúsinu í Mapusa. Þetta er stórt sjúkrahús og hér er mikil þörf á aðstoð frá sjálfboðaliðum. Þetta er splunku nýtt verkefni, og ég mun vera ein af þeim fyrstu frá Green Lion að vinna að því. Mér skilst að mér verði kennt að gefa allsskonar sprautur og að sjá um að hreinsa og skifta á sárum og fl.

Um helgina fórum við til Palolem Beach, sem er ca 2,5 tíma akstur frá Assonorra þarsem við búum. Þetta var fullkomin staður til að safna upp orku fyrir komandi viku. Mjúkur sandur, heitur og hreinn sjór. Þetta er miklu fallegri strönd en þær sem eru hérna handan við hornið þarsem við búum. Dagarnir voru langir og notaðir í lítið annað en að slappa af í sólbaði, og borða góðan mat. Ég hata að liggja upp-niður í sólbaði, og keypti mér þess vegna vindsæng. Þá fékk ég sól á kroppinn, samtímis sem ég kældi mig niður í sjónum og lék mér í öldunum. 
Ég var ekki viðbúin því hversu kalt það yrði í skúrnum sem við sváfum í yfir næturnar, og tók þessvegna ekki með mér allmennileg föt til að sofa í. Stuttbuxur, hlýrabolur og lakpoki var ekki nóg til að halda á sér hita, svo þó að helgin hafi verið æðisleg þá voru næturnar ekki góðar fyrir heilsuna. Það er kominn vetur hérna núna, svo það verður heldur kalt á nóttunni og svalt á morgnana - en samt 30 gráður í skugga yfir daginn.



Nokkrar myndir frá s.l. vikum:

Fögnum góðum degi í vinnunni með Kingfisher í bakgarðinum okkar.

Túristi á Palolem Beach

Á bátsferð. Bjálkarnir sem sjást í sitthvoru horrni á myndinni eru eitthvað sem bátaeigendurnir festa á aðra hlið á bátunum svo auðveldara sé að draga þá upp á land í lok dags.
Indverskur matur - létt blanda af hinu og þessu.

Við heimsóttum kryddakur. Þar fann ég þennann mann sem rúllaði vindla úr einhverri "hættulegri" plöntu. Ég keypti nokkra vindla til að prófa, þeir voru ekki lengi að enda í ruslatunnunni.

Hjólabátur í 40 stiga hita...

Undirbý kvöldverð á indverskan hátt.

Í strætó

Fiskmarkaðurinn. Fiskurinn ligger á bekkjum og svitna í sólinni þartil einhver vill kaupa hann, ef enginn kaupir þá er hann aftur til sölu daginn eftir. Hér lyktar allt alveg hræðilega, og við þurfum að ganga hér í gegn á hverjum degi til og frá vinnu. Á einhvern undarlega hátt byrjaði mér þó að líka að rölta hér í gegn, að sjá sama fólkið og ath. hver er að reyna að selja sama fiskinn dag eftir dag...skrítið hversu fljótt manni finnst maður vera "heima" þegar maður er með fastar rútinur

Kjötmarkaðurinn

Ávaxtamarkaðurinn. Hér sitja dömurnar og selja ávexti dag inn og dag út.

Týpísk bygging í Panjim. En á Indlandi getur maður fundið flest allt, líka "Partý búð" í byggingu sem lýtur út fyrir að bráðum falli hún niður.

Æfum yoga-moves í allmenningsgarði snemma morguns.  
Api að ræna af Beggu.
Við heimsóttum "Old Góa". Hér finnur maður margar aldagamlar kaþólskar kirkur.
Móðr sem kennt hefur dóttur sinni að gera sirkústrix til að þéna pening.

laugardagur, nóvember 19, 2011

Gestur í grimmum veruleika annara


Síðasta vikan hefur verið svakalega erfið, bæði fyrir likama, hjarta og sál. Í þessari færslu mun ég segja frá hlutunum alveg eins og þeir eru, svo ekki lesa ef þú vilt ekki vita.

Við vinnum á Mother Theresa heimilinu í Panjim. Þetta heimili er rekið af nunnum og hér búa munaðarlaus börn, ófrískar konur sem hafa þurft að flýja frá fjölskyldunni sinni/hafa verið sendar hingað af fjölskyldumeðlimum vegna komu barns sem ekki er óskað, og eldri konur sem fjölskyldan vill ekki hafa á heimilinu lengur afþví að það er erfitt að sjá um þær. Sum börnin eru líkamlega og andlega fötluð, sumar ófrísku konurnar eru mállausar/heyrnalausar, og gömlu konurnar kljást allar við líkamlega eða andlega sjúkdóma.

Nunnurnar eru sérstök fyrirbæri, og virðast vanta allt sem kallast félagsleg færni. Hinar konurnar sem vinna á Mother Theresa eru góðar konur og aðrar held ég að vanti hjarta.

Þegar við komum til M.T. s.l. mánudag mætti mér sjón sem ég ómögulega hefði getað undirbúið mig fyrir. Það fyrsta sem við gerðum var að hitta börnin. Við gengum inn í stórt dimmt herbergi, og þar inni voru tvær raðir af 7 bláum rimlarúmum úr stáli. Í sumum af rúmunum lágu sofandi, lítil, falleg börn. Inni í stóra herberginu er annað lítið herbergi með 10 rúmum sem standa þétt í þétt, hér liggja nýfæddu börnin.
Nýfæddu börnin fáum við ekki að snerta. Hin börnin eru á aldrinum 3mánaða til 6ára. Þau sem ekki eru nógu gömul til að ganga megum við ekki halda á og knúsa, þau eiga að liggja í rúminu allan daginn og ef þau gráta á að skifta um bleyju eða gefa þeim að borða. Hér eru ekki notaðar pampers, heldur taubleyjur sem hjálpa lítið. Svo ef einhver er búinn að pissa á sig, þá þarf maður að skifta á fötunum líka.

Það eru 3 fjölfötluð börn. Önnur stelpan er stíf í öllum líkamanum, hún getur hvorki sé né talað, en hún heyrir í okkur. Við strjúkum á henni handleggi og kynnar og syngum/tölum við hana reglulega gegnum daginn. Þá brosir hún og hlær...hljóðlaust. Hin stelpan er með líkama sem er snúinn á alla vega, en hún getur gengið á sinn eiginn hátt ef við styðum við hana. Hún skilur ensku, en kann lítið að tala, þó hún sé 6ðara. Hún neitar að borða, og konurnar sem vinna hérna þvinga ofan í hana matinn. Það er hræðilega að vera vitni af því hvernig það er gert. Þær slá með stálskeið í tennurnar hennar, snúa upp á eyrun hennar, lemja, öskra og klýpa hana í kinnarnar. Að sjá slíkt vera gert við lítið saklaust barn, og geta ekkert gert í því, það gefur verk í hjartað. Strákurinn er með vatnshöfuð og pínkulitlar snúnar fætur. Hann er hamingjusamur strákur,hann er alltaf brosandi og elskar tónlist.

Við höfum séð sumar konurnar sem vinna á M.T. slá 3 mánaða gamalt ungabarn, og nunnurnar nota elstu fötluðu stelpuna sem sirkúsdýr þegar gestir koma (þeir sem gefa peningagjafir til M.T. fá að koma og skoða börnin). Við erum með börnunum 3 tíma á dag. Þau sækjast mikið í okkur og vilja láta halda á sér og faðma okkur ótt og títt, þau sína skír merki um vanrækslu. Við leikum við þau, og knúsum og kyssum þau eins mikið og hægt er þessa 3 tíma á dag. Það er erfitt að segja bless við þau í lok samveru, við vitum ekki hvernig er komið fram við þau þegar við erum ekki til staðar.

Í öðrum hluta byggingarinnar búa ca 50 eldri konur. Þær sofa allar saman í risastóru herbergi sem samanstendur af bara rúmum sem öll standa þétt í þétt. Konurnar sitja á bekk allan daginn, hvern dag, og bíða dauðans. Hér hafa þær verið skildar eftir af fjölskyldumeðlimum sem hefur fundist erfitt að sjá um þær. Þá dama sem við höfum verið með eldri konunum hef ég ekki séð einn einasta fjölskyldumeðlim koma í heimsókn. Allar konurnar kljást við einhversskonar andlegan/líkamlegan sjúkdóm. Sumar geta ekki gengið vegna afmyndaðs líkama eða vöntum á útlimum. Það eru til hjólastólar á M.T. , en þessir eru ekki notaðir. Konurnar fá ekki hjálp til að nota salernið, þær skríða sumar á gólfinu, í gegnum hland og skít, inn á "baðherbergið" (hola í gólfið sem falið er á bakvið skítugar gardínur) og vonast til að ná inn á klósett áður en þær þurfa að gera það sem þær þurfa að gera á klósettinu. Sumar konurnar liggja í rúminu allan daginn því enginn hjálpar þeim að komast á fætur. Þær sem kljást við andlega sjúkdóma ganga fram og tilbaka í ganginum og lifa í sínum eigin heimi, þær fá enga hjálp. Konurnar fá mat og drykki, og það er allt.

Á fimmtudaginn gáfum við konunum "spa"-dag. Við keyptum það sem við þurftum til að laga á þeim neglurnar og gefa þeim fótanudd, það fannst þeim gott og gaman.

Ófrísku konurnar fáum við ekki að hitta, nema þegar þær koma til okkar sjálfar. Sumar þeirra eru andlega fatlaðar og hefur verið nauðgað, sumar ganga með stúlkubarn sem ekki er velkomið í fjölskylduna, og sumar konurnar eru yfir fertugt og það mun setja skömm á fjölskylduna að eignast barn á þeim aldri. Ég hitti eina af þessum konum. Ég myndi giska að hún sé ca 16ára og ca 6 mánuði á leið. Hún getur hvorki talað né heyrt. Hún settist hjá mér á bekk, og ég bauð henni fótanudd. Hún nuddaði þá á sér magann og byrjaði að hágráta, ég tók utan um hana og reynda að hugga. Konurnar sem vinna þarna komu þá, 3 stk. , og öskruðu á hana og skömmuðu og drógu hana með inn í herbergi.

Ég var alls ekki undirbúin fyrir að upplifa allt sem ég hef upplifað síðustu daga. Ég er uppgefin og vanmáttug. Mér finnst ég heppin, samtímis er ég með samvikubit.
Að vera gestur í annara grimma veruleika, sem er svo endalaust öðruvísi en minn eiginn, mér er illt allsstaðar, og finn að allt stendur í nýju sjónarhorni.

Á Indlandi er lífið ekki dans á rósum.





föstudagur, nóvember 11, 2011

Strætóferðir og hið daglega líf


Þetta er húsið okkar. Hér inni megum við ekki borða kjöt, drekka (né geyma) áfengi né reykja.
En þetta megum við hinsvegar gera í bakgarðinum.
Í skrifandi stundu sit ég í bakgarðinum fyrir utan mitt "litla" fallega hús í Asnorra, sem er lítið sveitaþorp rétt fyrir utan Mapusa. Hér bý ég með 13 öðrum stúlkum sem eru líka sjálfboðaliðar á svæðinu, 2 leiðbeinendum sem eru bæði indversk, voðalega hugguleg og hjálpsöm og sjá vel um okkur. Við erum lika með okkar eigin kokk sem heitir Letta (pínkulítil falleg indversk kona sem  við öll elskum).

Síðastliðin vika hefur verið "kynningar"-vika. Við höfum fengið hjálp til að kynnast svæðinu hér í kring, við fórum á fræga Anjuna-markaðinn, fengum kennslu í að elska indverskan mat og svo erum við líka búnar að læra smá af tungumálinu sem er talað hér í Góu. Fyrstu dagarnir voru frekar erfiðir, það var alltaf svo mikil bið eftir öllu. Hér tölum við um "indverskan"-tíma og "vestrænan"-tíma, ef við fáum skilaboð frá leiðbeinendunum (sem eru indversk eins og ég nefndi áðan) um að við eigum að vera tilbúnar eftir 10mínútur, þá þýðir það að við verðum að vera tilbúnar eftir 30-40mínútur. Ég er alltaf tilbúin á réttum tíma og hata að bíða, þannig að þetta hefur reynt mikið á mína þolinmæði. En núna, nokkrum dögum síðar, þá er ég orðin jafn afslöppuð og letidýr.

Ég vakna ofast á undan öllum öðrum og nýt þagnarinnar (það er ekki auðvelt að búa í fjölmennum hænsnakofa). Ég nota tímann í að þvo þvott, hér eru engar þvottavélar svo þvottinn þvoum við í plastfötum sem við erum með í bakgarðinum. Mér finnst gaman að þvo þvottinn á þennan hátt. Það er svolítið eins og að vaska upp, erfitt að byrja en þegar maður er kominn í gang þá er það algjör gæða tími með eigin hugsunum.

Letta, kokkurinn okkar, býr til hádegismat og kvöldverð fyrir okkur á hverjum degi. Hún er ofsalega hugguleg, en maturinn bragðast eins og ég get ýmindað mér að fangelsismatur bragðist. Flestar hinar stelpurnar eru frá Þýskalandi og borða ekki sterkan mat, svo Letta reynir að gera matinn minna sterkan og meira vestrænan, og því miður er hún ekki góð í því. En, þetta er víst bara hluti af upplifuninni, svo ég borða það sem ég fæ með bros á vör og hugsa að þetta verði líklega eitthvað til að hlægja af síðar meir.

Strætóstöðin í Mapusa
Ég get ekki sagt að ég hafi fengir neitt sem hægt er að kalla "menningarsjokk" síðan ég kom hingað. En ég er viss um að ég muni fá að upplifa það þegar ég yfirgef Góu í byrjun desember. Góa er sá hluti Indlands sem er mest vestrænn, og það er sagt að það sé ekki hægt að kalla þetta "ekta" Indland.
Ég er strax komin með mínar föstu rútínur. Á hverju kvöldi sest ég
 í bakgarðinn og skrifa í dagbókina mína.

Mest indverska upplifunin sem ég hef fengið síðan ég kom hingað er að fara í strætó. Strætóarnir eru puntaðir með blómum og jólaljósum. Það virkar þannig að maður verður að hoppa upp í strætóinn eins hratt og maður getur, og stundum er strætóinn á ferð. Ef maður er er MJÖG heppinn þá fær maður sæti, og oftast er maður ekki MJÖG heppinn og þá þarf maður að standa. Gangurinn sem maður stendur í er ca 1 meter breiður, og þegar maður heldur að núna sér virkilega ekki pláss fyrir fleiri í strætónum þá koma 20 manns í viðbótum um borð. Þegar maður ætlar úr strætónum á þarf maður að pressa sér í gegnum fólksfjöldann og vona að maður komist að útganginum áður en keyrt er framhjá stoppinu manns. Einhverjum finnst þetta líklega hljóma skelfilega, en ég ELSKA þetta. Í eitt skiptið var ég bara heppni að ég náði að troða mér inn í strætóinn, og ég kom mér ekki inn í ganginn heldur var mér ýtt uppvið vegginn sem aðskilur "herbergið" sem bílstjórinn situr í, og restina af strætónum. Þetta var um miðjan dag svo það var virkilega heitt úti (og ennþá heitara inni með fólksfjöldanum). Ég var umkringd indverskum konum og mönnum sem störðu á mig líkt og ég væri geimvera. Frábær upplifun !

Í dag förum við með strætó til Panjim. Þar ætlum við að borða GÓÐAN mat og fara í bíó að sjá Bollywood-mynd. Ég hlakka mikið til.


Mér hefur strax tekist að verða veik. Maginn virkar ekki eins og vera ber, og í gær var ég með hita. Mýflugurnar elska mitt íslenska blóð, og flest bitin sem ég fæ bólgna upp og verða jafn stór og gólfkúlur.

Á mánudaginn byrjum við að vinna. ÞAÐ verður spennandi.


fimmtudagur, nóvember 03, 2011

Fyrstu kynni við Indland


Ferðin frá Stavanger til Góu gekk vel, náðum öllum flugum og stoppuðum meira að segja í nokkra tíma í London og skoðuðum Buckhingham Palace og Big Ben.

Samtal sem átti sér stað þegar við sáum Mumbai úr flugvélinni, nývaknaðar og þreyttar:

Begga: "Vá, fullt af blokkum"
Hildur: "Já, þetta er bara eins og breiðholt"
Begga: "Já, nákvæmlega eins og efra breiðholt"

Svo flugum við til Góu, og tókum leigubíl beint til Anjuna Beach. Og ég get sagt ykkur það að Anjuna Beach líkist Nauthólvík ekki neitt !

Við tókum fyrstu og ódýrustu gistinguna sem okkur var boðið (hjá ótrúlega sætri gamallli konu og annari ennþá eldri og sætari). Hér borguðum við 200kr.isl. á mann nóttina (100rupies) og fengum nákvæmlega það sem við borguðum fyrir. Við gistum í kofa sem var að hruni kominn, og klósettið og sturtan var úti. Þegar úti var orðið dimmt þurftum við að fylgja hvor annari á klósettið með vasaljós í farateskinu (þó það sé svosem ekki erfitt að hitta ofan í klósettið þegar það getur skilgreinst sem stór hola í jörðina, en Begga var svo hrædd um að detta ofaní holuna..). Sturtan leit út eins og 100ára gömul sturta, og virkaði eftir því (virkaði semsagt ekki, svo sjampóið var ekki notað þann daginn).
Áður en Begga fann prik handa mér þá var ég vopnuð með blautsérvéttu
Fyrsta kvöldið notuðum við í að borða yndislegan indverskan mat, svitna og horfa á eldingar slá niður í hafið. Þegar við komum tilbaka í fallega húsið okkar ákvað ég að opna bjór handa okkur. Bjór sem Begga hafði hrisst vel í töskunni sinni (og það vissi ég ekki). Bjórinn gusaðist yfir mig alla og herbergið (við höfðum bæði gott af smá sturtu, svo það var ágætt). Þegar ég var að reyna að þurfa upp bjórinn af gólfinu komst ég fljótlega að því að við Begga vorum ekki einar í herberginu. Undir rúminu faldi sig risastór kakkalakki. Þá sá ég strax eftir því að hafa lofað Beggu að ég yrði pöddubaninn alla ferðina. En ég stend við það sem ég lofa. Eftir hálftíma stríð var það að sjálfsögðu íslendingurinn sem vann indverska kakkalakkann, með prik að vopni.

Við vöknuðum snemma á fimmtudagsmorgunn og fundum okkur nýjan samastað. Nú búum við á ströndinni og ætlum að búa hér þartil á sunnudaginn. Í gær lágum við á ströndinni allan daginn og syntum í sjónum, það var heitt og við urðum fljótlega eirðarlausar, svo við endurtökum það ekki í dag. Indverjarnir eru ekki feimnir og segja okkur ótt og títt hvað við erum hvítar (sem er eitthvað sem við gerum okkur fullkomnlega grein fyrir, og vantar ekki að láta minna okkur á). Við segjum þeim að við komum frá landi þarsem sólin aldrei skín, og að búa þar sé hægt að líkja við að búa í Himalaya.
Í gær var ég stoppuð á ströndinni af tveimur inverskum fjölskyldum sem langaði svo ofsalega að taka mynd með mér. Ég varð að sjálfsögðu að þeirri ósk. Fyrst mynd af mér og börnunum, svo mynd af mér og konunum og svo mynd af mér og körlunum osv.frv. Afhverju vildu þau taka mynd með mér ? Vegna þess að ég er svo HVÍT !
Ávaxtakonan sem við kaupum melónu af

Annað sem hefur gerst:


  • Ég er sólbrennd
  • Ég er búin að fá heilagan kúa skít í skóinn
  • Ég er búin að læra að segja 4 setningar á hindí
  • Indversk rúm eru fáránlega hörð, gæti alveg eins sofið á gólfinu
  • Allir í Góu (búandi og ferðamenn) finnst við skrítnar afþví að við notum ekki eiturlyf. Okkur er boðið að kaupa hass jafn oft og við fáum okkur sopa af vatni (nonstop)


  
Við verðum hér á Anjuna Beach þartil á sunnudaginn. Þá förum við til Mapusa þarsem við ætlum að vinna í 4 vikur. Okkur hlakkar mikið til !

Besta vinkona okkar sem finn við geðveikt hvítar og píndi okkur til að gefa henni indverskt litlaputtaloforð um að koma og versla í búðinni hennar.
Heyrumst eftir viku ! 

mánudagur, október 31, 2011

Síðasta nóttin...

Þá er komið að þessu. Síðasta nóttin heima í laaangan tíma. Ég er spennt, ég er stressuð og ég er margt annað sem ég á ekki orð yfir.

Plan næstu daga:

Þriðjudagur

  • Flug kl.08:10 í fyrrmálið - Stavanger til Osló.
  • Flug kl.11:30 (held ég ?! Lofar góðu...) - Osló - London
  • Lendi í London kl.13:05, taka lest inn til Westminister að hitta vinkonu mína sem ég kynntist í Berlín í sumar...reyna að villast ekki.
  • Flug kl.20:35 - London - Mumbai
Miðvikudagur
  • Vakna hress og kát í aðflugi að Mumbai. Lendi kl.11:00 að morgni.
  • Flug kl.15:00 - Mumbai - Goa
  • Kl.16:00 - Koma mér með einhverju faratæki (kannski bara heilagri belju) til Anjuna Beach, og vona að ég finni mér gistingu fyrir myrkur...er ekki búin að panta neitt...
Stay tuned ! 

föstudagur, október 28, 2011

Skór handa einhverjum sem vantar þá


Í kvöld safnaði ég saman systkinum mínum heima hjá foreldrum mínum. Mamma ákvað að grípa tækifærið til að fá alla til að fara yfir alla skóna á heimilinu sem virðast ekki vera í notkun. Við fundum allt frá ónotuðum fótbolta skóm að skóm í fína lagi sem mamma var búin að gleyma afhverju hún hætti að nota (pabbi tók eftir því að önnur reimin var í smá ólagi, og ákvað að þessvegna hefði hún bara keypt sér nýja skó...höfum við það of gott í Noregi? ) Enginn virtist hafa áhuga á skónum, og ég safnaði þess vegna saman tveimur höldupokum af skóm sem ég ætla að taka með mér til Indlands og gefa einhverjum sem vantar þá. Í Delhi getur hitastigið farið niður í allt að 0 gráður, og þá er gott að eiga ágætisskó. En útum allt í Indlandi búa börn sem ekki eiga foreldre, sem ekki fá mat á hverjum degi, og hafa allavega ekki efni á að kaupa sér nýja skó. En skórnir á þessu heimili eru allir í stærð 39-43 og án þess að þekkja til staðreynda, þá held ég að indverjar séu ekki sérlega stórfætt þjóð. Þess vegna vil ég biðja um smá hjálp. Ef þú býrð ekki oft langt frá mér og átt skó upp að stærð 39 (helst samt barnastærðir) sem eru í góðu lagi og liggja bara inní skáp og bíða eftir nýjum eiganda, þá endilega hafðu samband við mig í síma 94804881 og ég kem og sæki þá. Ég á flug kl.08:10 á þriðjudagsmorgun, svo þetta þarf að gerast fyrir mánudagskvöld kl.22.


Ég vona að ÞÚ viljir taka þátt í að gleðja einhvern sem þarf á því að halda ! 

þriðjudagur, október 25, 2011

Tiltekt í sálu, fortíð og háalofti.

Í dag fór ég í gegnum alla kassa uppá háalofti, og allt safnið í herberginu mínu. Það var ótrúlega gott og gaman. Ég fann ýmislegt, t.d. ástarljóð sem var ort til mín þegar ég var 15ára, bók sem Vikar litli bróðir bjó til handa mér þegar hann var 6 ára og hvorki meira né minna en 15 kveikjara...ásamt öðru. Ég fann ótrúlega margt sem mér hefur greinilega þótt þess virði að eiga og halda uppá áður (margt af þessu dóti hef ég ekki séð í 7ár), en þótti það ekki í þetta sinn. Mörgu var hent, og einhverju safnað saman til að gefa í Hjálpræðisherinn. Ég er nú búin a setja allt niður í kassa nema það sem á að fara í bakpokann.
Sumir segja að þegar maður taki til í kringum sig, þá taki maður til í sálinni í leiðinni. Og það var akkúrat það sem ég gerði í dag. Ég tók til í sálinni,  fortíðinni OG heimilinu...ég er viss um að ég muni sofa extra vel í nótt !

Það eru 6 dagar í brottför og ég er opinberlega byrjuð að pakka og hlakka til !

mánudagur, október 03, 2011

Ferðafélagi

Í lok mai sat ég á kaffihúsi með Bergljótu sem er einnig þekkt sem Begga. Við vorum að ræða kosti og galla lífsins og Begga var að ganga í gegnum einhversskonar tilvistarkreppu. Hún var nýlega búin að ákveða að hún ætlaði að flytja aftur til Íslands, en vissi ei hvað gera skildi með næsta árið. Þarna var ég nýlega flutt heim til foreldra minna til að spara pening fyrir ferðinni góðu, og mín lausn við allra manna vangaveltum þær vikurnar var "Komdu með til Indlands". Og það var akkúrat það sem ég sagði við Beggu yfir þessu ógleymanlega kaffibolla (bæði afþví að þetta var ógeðslegt kaffi, og afþví að Begga tók ráði mínu yfir honum), fáum vikum síðar pöntuðum við sitthvorn flugmiðann til Indlands.

Hver er Begga ?
  • Hún er fædd á Húsavík eða Akureyri...pottþétt á Íslandi allavega...árið 1986.
  • Hún bjó ca 2 ár í Noregi
  • Hún hefur aldrei komið útfyrir Evrópu áður, og er búin að finna út hvar öll íslensku sendiráðin í öllum löndunum sem við ætlum til eru og prenta heimilisföngin út á blað.
  • Hún á hugsanlega langalangalanga ömmu í Vietnam
(Ég áttaði mig rétt í þessu á því að ég veit afskaplega fátt um Beggu...en ég er viss um að ég mun kynnast henni betur en flestum, á ferðalaginu okkar)

Begga lítur svona út :

Begga með nýja bakpokann sem hún verslaði sér. Hún keypti stærsta bakpokann sem hún fann svo við getum tekið með okkur heim öll sætu foreldralausu börnin á barnaheimilinu sem við erum að fara að vinna á.

Þessa mynd fann Begga uppi á háalofti hjá ömmu sinni. Vegna hattarins og hversu lík þessi kona er Beggu útlitslega, erum við vissar um að Begga eigi langalangalanga ömmu í Víetnam.

föstudagur, september 30, 2011

Vegabréfsáritun

Það rann upp fyrir mér fyrir nokkrum dögum síðan að það styttist í brottför, ég legg af stað eftir mánuð og á eftir að gera milljón hluti áður en ég legg af stað. Eitt af því mikilvægasta er að fá vegabréfsáritun svo mér verði hleypt inn í Indland, en umsókn um slíka fór í póst í dag.

Að sækja um vegabréfsáritun til Indlands er í raun og veru mjög einfalt mál (ég vona það allavega því ef ekki þá hef ég verið að gera eitthvað vitlaust...). Ég verð þó að viðurkenna að ég svitnaði örlítið á meðan ég fyllti út pappírana. Það er nefnilega þannig að ef maður er erlendur ríkisborgari í Noregi að sækja um vegabréfsáritun til Indlands, þá er afgreiðslutíminn MINNST 10 dagar. Þarsem að sendiráðið er í Osló, þá þurfti ég þar að auki að senda umsóknina með pósti og fá hana tilbaka með pósti...hér bætast semsagt við 2-4 dagar. Það er nú líka þannig að á heimasíðunni hjá sendiráðinu eru litlar (lesið: ENGAR) leiðbeiningar um hvernig pappírarnir skuli fyllast út, og ef maður fyllir eitthvað út rangt (eða gleymir að fylla út eitthvað) þá er allt sent tilbaka til mans og maður þarf að fylla út uppá nýtt...ég legg af stað eftir 30 daga svo ef annað eins gerist, þá neyðist ég líklega til að skreppa til Osló og mæta í persónu í sendiráðið, því þá verð ég orðin ansi tæp á tíma. Núna eru örugglega einhverjir að hugsa "afhverju er hún ekki bara löngu búin að þessu?!" , jú það er vegna þess að maður fær vegabréfsáritun fyrir 3 mánuði og hún gildir frá deginum sem hún er gefin út, og þarsem að ég ætla að vera á Indlandi til 19.desember þá gat ég ekki sótt um fyrr en núna. Ég vona að þetta komi sér til skila til mín áður en ég legg af stað...ef ekki þá kemst ég ekki lengra en Osló, vegabréfið mitt fór nefnilega í póstinn líka...



Ef þú ert íslendingur (eða einhversskonar útlendingur í Noregi sem skilur íslensku og getur þessvegna lesið þessa bloggfærslu...eða bara útaf einhverjum öðrum ástæðum,,) í Noregi á leiðinni til Indlands, þá þarftu að gera þetta til að sækja um vegabréfsáritun:

1. Farðu inn á heimasíðu Indian Visa Application Center (ef þú átt leið hjá Oslo þá geturðu líka mætt í persónu á skrifstofuna þeirra).
2. Fylltu út Online application og prentaðu skjalið út. Límdu/heftaðu passamynd af þér (ekki afa þínum eða öðrum ættingja/vini, lendir líklega í vanræðum skildirðu gera slíkt) í hægra horn efst á blaðinu.
3. Ef þú ert ekki norskur ríkisborgari þá þarftu líka að fylla út Telefax for visa clearance (nr.9 neðst á síðunni).
4. Vegabréfsáritun til Indlands kostar 585NOK fyrir erlenda ríkisborgara (535NOK fyrir norðmenn). Ef þú sendir þetta með pósti þarftu líka að borga 130NOK , þetta er notað til að senda pappírana þína og vegabréfið tilbaka til þín í ábyrgð. Þetta gera 715NOK , sem þú leggur inn á bankareikning 9046 11 60270 . Prentaðu út kvittun fyrir greiðslunni.
5. Settu eftirfarandi í umslag : "online application" med mynd (af þér), "telefax for visa clearance" , kvittun fyrir greiðslu og vegabréfið þitt. Sendu þetta svo í ábyrð til : TT Service AB, Postboks nr. 3006 , 0207 Oslo.
6. Ekki gleyma að:  Afgreiðslutími fyrir erlenda ríkisborgara eru minst 10 dagar (+pósttími) og vegabréfsáritunin gildir frá deginum sem hún er gefin út, ekki deginum sem þú lendir á Indlandi.

Gangi þér vel og góða ferð :)

þriðjudagur, september 20, 2011

Indland og 19ára ég.

Fyrir 7 árum síðan fór ég alveg óvart til Sri Lanka. Þá var ég 18 ára og var þetta mín fyrsta ferð út fyrir Evrópu. Bæði fólkið og náttúran heilluðu mig uppúr sandölunum og eftir það hefur mig dreymt endalaust um að ferðast meira til framandi landa, og hef ég farið í einstaka stuttar ferðir. En núna er komið að stóru ferðinni. Einn fallegan aprílmorgunn fyrr á þessu ári þá vaknaði ég og ákvað að nú væri rétti tíminn kominn, svo ég pantaði mér miða aðra leið til Indlands. Í kjölfarið að því pakkaði ég saman eigum mínum og flutti heim til foreldra minna (til að spara pening...takk foreldrar!) svo að ég mögulega gæti verslað mér eitthvað í svanginn á Indlandi.
Ég legg af stað þann 1.nóvember til Indlands. Þar ætla ég að vinna sem sjálfboðaliði á heimili fyrir munaðarlaus börn og ungar stúlkur sem hafa þurft að flýja að heiman vegna þess að þær hafa orðið ófrískar utan hjónabands.
Þann 19.desember á ég svo flug til Tælands þar sem önnur ævintýri taka við. Ég er bara búin að kaupa flugmiða aðra leið, en ég býst við að vera á flakki um Asíu í ca 6 mánuði.
Ég á eftir að gera endalaust margt áður en ég fer af stað, til dæmis þarf ég að redda mér vegabréfsáritun svo að mér verði hleypt inn í Indland. Vonandi hefst þetta allt hjá mér, og ég mun reyna að vera dugleg að setja inn sögur af undirbúning ferðarinnar áður en ég legg af stað...


Ég fann gamla bloggfærslu áðan (og skellti uppúr af hlátri þegar ég las hana) , set hana að gamni hérna inn:


"Ég hef mikið verið að pæla í því síðustu mánuði hvernig framtíð mín verður. Eftir akkurat 5mánuði og 16daga verð ég tvítug. Og ég er farin að verða svolítið stressuð. Ég er í algjörri tímaþröng. Ég ætla að eignast fyrsta barnið mitt þegar ég er orðin 25ára, og áður en ég eignast barn þá ætla ég að vera búin með skólann, vera komin í góða vinnu, búin að kaupa mér hús og bíl, og búin að ferðast um heiminn í minnst 1ár. Og sko, skólinn tekur 3ár, ferðalagið 1ár, og svo vantar góðu vinnuna, og svo þarf ég líklega að spara í 2ár áður en ég get fengið lán fyrir húsi og bíl...ó mæ guð, þetta eru samtals 6ár, og svo getur alltaf orðið smá seinkun..mig vantar svona 2ár ekstra....einhver sem þekkir einhvern stjórnmálamann sem situr á alþingi og getur reddað mér lengri árum??


Shit, ég er að verða gömul..."


Ég varð semsagt 25 ára síðast liðinn apríl og er greinilega einhverjum árum á eftir áætlun samkvæmt 19 ára mér. Guði sé lof á ég engin börn (og ekki manninn heldur sem ég ætlaði að eignast þau með þegar ég skrifaði þetta), ég er á öðru ári í háskólanámi en er samt ekki byrjuð að læra það sem mun verða mér að atvinnu, og ég á bíl sem ég vildi óska þess að ég ætti ekki. Og mér finnst ég ekkert gömul (bara stundum, eins og t.d. þegar krakkarnir í bekknum mínum spyrja mig hvort ég sé í mastersnámi eða þegar litli frændi minn giskar að ég sé 50ára).

Ég vona að sem flestir vilji fylgjast með mér á ferðalagi, og ef þú hefur komið til Asíu eða bara veist óvart fullt um Asíu og ert með einhver góð tips handa mér þá endilega skrifaðu til mín línu !