sunnudagur, nóvember 20, 2011

Veikindi, nýtt verkefni og myndir

Í dag ákvað ég að vera heima frá verkefninu. Ég er búin að vera mikið kvefuð, hóstandi, með smá hita og eyrnaverk í 6 daga núna, og held ég þurfi að hvíla mig allmennilega til að verða frísk.

Ég er að hugsa um að skifta um verkefni. Hinar stelpurnar sem vinna með mér á Mother Theresa ákváðu að hætta þar, og ég held að það verði of erfitt að sjá um þetta ein. Mér hefur verið boðið að vinna á sjúkrahúsinu í Mapusa. Þetta er stórt sjúkrahús og hér er mikil þörf á aðstoð frá sjálfboðaliðum. Þetta er splunku nýtt verkefni, og ég mun vera ein af þeim fyrstu frá Green Lion að vinna að því. Mér skilst að mér verði kennt að gefa allsskonar sprautur og að sjá um að hreinsa og skifta á sárum og fl.

Um helgina fórum við til Palolem Beach, sem er ca 2,5 tíma akstur frá Assonorra þarsem við búum. Þetta var fullkomin staður til að safna upp orku fyrir komandi viku. Mjúkur sandur, heitur og hreinn sjór. Þetta er miklu fallegri strönd en þær sem eru hérna handan við hornið þarsem við búum. Dagarnir voru langir og notaðir í lítið annað en að slappa af í sólbaði, og borða góðan mat. Ég hata að liggja upp-niður í sólbaði, og keypti mér þess vegna vindsæng. Þá fékk ég sól á kroppinn, samtímis sem ég kældi mig niður í sjónum og lék mér í öldunum. 
Ég var ekki viðbúin því hversu kalt það yrði í skúrnum sem við sváfum í yfir næturnar, og tók þessvegna ekki með mér allmennileg föt til að sofa í. Stuttbuxur, hlýrabolur og lakpoki var ekki nóg til að halda á sér hita, svo þó að helgin hafi verið æðisleg þá voru næturnar ekki góðar fyrir heilsuna. Það er kominn vetur hérna núna, svo það verður heldur kalt á nóttunni og svalt á morgnana - en samt 30 gráður í skugga yfir daginn.



Nokkrar myndir frá s.l. vikum:

Fögnum góðum degi í vinnunni með Kingfisher í bakgarðinum okkar.

Túristi á Palolem Beach

Á bátsferð. Bjálkarnir sem sjást í sitthvoru horrni á myndinni eru eitthvað sem bátaeigendurnir festa á aðra hlið á bátunum svo auðveldara sé að draga þá upp á land í lok dags.
Indverskur matur - létt blanda af hinu og þessu.

Við heimsóttum kryddakur. Þar fann ég þennann mann sem rúllaði vindla úr einhverri "hættulegri" plöntu. Ég keypti nokkra vindla til að prófa, þeir voru ekki lengi að enda í ruslatunnunni.

Hjólabátur í 40 stiga hita...

Undirbý kvöldverð á indverskan hátt.

Í strætó

Fiskmarkaðurinn. Fiskurinn ligger á bekkjum og svitna í sólinni þartil einhver vill kaupa hann, ef enginn kaupir þá er hann aftur til sölu daginn eftir. Hér lyktar allt alveg hræðilega, og við þurfum að ganga hér í gegn á hverjum degi til og frá vinnu. Á einhvern undarlega hátt byrjaði mér þó að líka að rölta hér í gegn, að sjá sama fólkið og ath. hver er að reyna að selja sama fiskinn dag eftir dag...skrítið hversu fljótt manni finnst maður vera "heima" þegar maður er með fastar rútinur

Kjötmarkaðurinn

Ávaxtamarkaðurinn. Hér sitja dömurnar og selja ávexti dag inn og dag út.

Týpísk bygging í Panjim. En á Indlandi getur maður fundið flest allt, líka "Partý búð" í byggingu sem lýtur út fyrir að bráðum falli hún niður.

Æfum yoga-moves í allmenningsgarði snemma morguns.  
Api að ræna af Beggu.
Við heimsóttum "Old Góa". Hér finnur maður margar aldagamlar kaþólskar kirkur.
Móðr sem kennt hefur dóttur sinni að gera sirkústrix til að þéna pening.

laugardagur, nóvember 19, 2011

Gestur í grimmum veruleika annara


Síðasta vikan hefur verið svakalega erfið, bæði fyrir likama, hjarta og sál. Í þessari færslu mun ég segja frá hlutunum alveg eins og þeir eru, svo ekki lesa ef þú vilt ekki vita.

Við vinnum á Mother Theresa heimilinu í Panjim. Þetta heimili er rekið af nunnum og hér búa munaðarlaus börn, ófrískar konur sem hafa þurft að flýja frá fjölskyldunni sinni/hafa verið sendar hingað af fjölskyldumeðlimum vegna komu barns sem ekki er óskað, og eldri konur sem fjölskyldan vill ekki hafa á heimilinu lengur afþví að það er erfitt að sjá um þær. Sum börnin eru líkamlega og andlega fötluð, sumar ófrísku konurnar eru mállausar/heyrnalausar, og gömlu konurnar kljást allar við líkamlega eða andlega sjúkdóma.

Nunnurnar eru sérstök fyrirbæri, og virðast vanta allt sem kallast félagsleg færni. Hinar konurnar sem vinna á Mother Theresa eru góðar konur og aðrar held ég að vanti hjarta.

Þegar við komum til M.T. s.l. mánudag mætti mér sjón sem ég ómögulega hefði getað undirbúið mig fyrir. Það fyrsta sem við gerðum var að hitta börnin. Við gengum inn í stórt dimmt herbergi, og þar inni voru tvær raðir af 7 bláum rimlarúmum úr stáli. Í sumum af rúmunum lágu sofandi, lítil, falleg börn. Inni í stóra herberginu er annað lítið herbergi með 10 rúmum sem standa þétt í þétt, hér liggja nýfæddu börnin.
Nýfæddu börnin fáum við ekki að snerta. Hin börnin eru á aldrinum 3mánaða til 6ára. Þau sem ekki eru nógu gömul til að ganga megum við ekki halda á og knúsa, þau eiga að liggja í rúminu allan daginn og ef þau gráta á að skifta um bleyju eða gefa þeim að borða. Hér eru ekki notaðar pampers, heldur taubleyjur sem hjálpa lítið. Svo ef einhver er búinn að pissa á sig, þá þarf maður að skifta á fötunum líka.

Það eru 3 fjölfötluð börn. Önnur stelpan er stíf í öllum líkamanum, hún getur hvorki sé né talað, en hún heyrir í okkur. Við strjúkum á henni handleggi og kynnar og syngum/tölum við hana reglulega gegnum daginn. Þá brosir hún og hlær...hljóðlaust. Hin stelpan er með líkama sem er snúinn á alla vega, en hún getur gengið á sinn eiginn hátt ef við styðum við hana. Hún skilur ensku, en kann lítið að tala, þó hún sé 6ðara. Hún neitar að borða, og konurnar sem vinna hérna þvinga ofan í hana matinn. Það er hræðilega að vera vitni af því hvernig það er gert. Þær slá með stálskeið í tennurnar hennar, snúa upp á eyrun hennar, lemja, öskra og klýpa hana í kinnarnar. Að sjá slíkt vera gert við lítið saklaust barn, og geta ekkert gert í því, það gefur verk í hjartað. Strákurinn er með vatnshöfuð og pínkulitlar snúnar fætur. Hann er hamingjusamur strákur,hann er alltaf brosandi og elskar tónlist.

Við höfum séð sumar konurnar sem vinna á M.T. slá 3 mánaða gamalt ungabarn, og nunnurnar nota elstu fötluðu stelpuna sem sirkúsdýr þegar gestir koma (þeir sem gefa peningagjafir til M.T. fá að koma og skoða börnin). Við erum með börnunum 3 tíma á dag. Þau sækjast mikið í okkur og vilja láta halda á sér og faðma okkur ótt og títt, þau sína skír merki um vanrækslu. Við leikum við þau, og knúsum og kyssum þau eins mikið og hægt er þessa 3 tíma á dag. Það er erfitt að segja bless við þau í lok samveru, við vitum ekki hvernig er komið fram við þau þegar við erum ekki til staðar.

Í öðrum hluta byggingarinnar búa ca 50 eldri konur. Þær sofa allar saman í risastóru herbergi sem samanstendur af bara rúmum sem öll standa þétt í þétt. Konurnar sitja á bekk allan daginn, hvern dag, og bíða dauðans. Hér hafa þær verið skildar eftir af fjölskyldumeðlimum sem hefur fundist erfitt að sjá um þær. Þá dama sem við höfum verið með eldri konunum hef ég ekki séð einn einasta fjölskyldumeðlim koma í heimsókn. Allar konurnar kljást við einhversskonar andlegan/líkamlegan sjúkdóm. Sumar geta ekki gengið vegna afmyndaðs líkama eða vöntum á útlimum. Það eru til hjólastólar á M.T. , en þessir eru ekki notaðir. Konurnar fá ekki hjálp til að nota salernið, þær skríða sumar á gólfinu, í gegnum hland og skít, inn á "baðherbergið" (hola í gólfið sem falið er á bakvið skítugar gardínur) og vonast til að ná inn á klósett áður en þær þurfa að gera það sem þær þurfa að gera á klósettinu. Sumar konurnar liggja í rúminu allan daginn því enginn hjálpar þeim að komast á fætur. Þær sem kljást við andlega sjúkdóma ganga fram og tilbaka í ganginum og lifa í sínum eigin heimi, þær fá enga hjálp. Konurnar fá mat og drykki, og það er allt.

Á fimmtudaginn gáfum við konunum "spa"-dag. Við keyptum það sem við þurftum til að laga á þeim neglurnar og gefa þeim fótanudd, það fannst þeim gott og gaman.

Ófrísku konurnar fáum við ekki að hitta, nema þegar þær koma til okkar sjálfar. Sumar þeirra eru andlega fatlaðar og hefur verið nauðgað, sumar ganga með stúlkubarn sem ekki er velkomið í fjölskylduna, og sumar konurnar eru yfir fertugt og það mun setja skömm á fjölskylduna að eignast barn á þeim aldri. Ég hitti eina af þessum konum. Ég myndi giska að hún sé ca 16ára og ca 6 mánuði á leið. Hún getur hvorki talað né heyrt. Hún settist hjá mér á bekk, og ég bauð henni fótanudd. Hún nuddaði þá á sér magann og byrjaði að hágráta, ég tók utan um hana og reynda að hugga. Konurnar sem vinna þarna komu þá, 3 stk. , og öskruðu á hana og skömmuðu og drógu hana með inn í herbergi.

Ég var alls ekki undirbúin fyrir að upplifa allt sem ég hef upplifað síðustu daga. Ég er uppgefin og vanmáttug. Mér finnst ég heppin, samtímis er ég með samvikubit.
Að vera gestur í annara grimma veruleika, sem er svo endalaust öðruvísi en minn eiginn, mér er illt allsstaðar, og finn að allt stendur í nýju sjónarhorni.

Á Indlandi er lífið ekki dans á rósum.





föstudagur, nóvember 11, 2011

Strætóferðir og hið daglega líf


Þetta er húsið okkar. Hér inni megum við ekki borða kjöt, drekka (né geyma) áfengi né reykja.
En þetta megum við hinsvegar gera í bakgarðinum.
Í skrifandi stundu sit ég í bakgarðinum fyrir utan mitt "litla" fallega hús í Asnorra, sem er lítið sveitaþorp rétt fyrir utan Mapusa. Hér bý ég með 13 öðrum stúlkum sem eru líka sjálfboðaliðar á svæðinu, 2 leiðbeinendum sem eru bæði indversk, voðalega hugguleg og hjálpsöm og sjá vel um okkur. Við erum lika með okkar eigin kokk sem heitir Letta (pínkulítil falleg indversk kona sem  við öll elskum).

Síðastliðin vika hefur verið "kynningar"-vika. Við höfum fengið hjálp til að kynnast svæðinu hér í kring, við fórum á fræga Anjuna-markaðinn, fengum kennslu í að elska indverskan mat og svo erum við líka búnar að læra smá af tungumálinu sem er talað hér í Góu. Fyrstu dagarnir voru frekar erfiðir, það var alltaf svo mikil bið eftir öllu. Hér tölum við um "indverskan"-tíma og "vestrænan"-tíma, ef við fáum skilaboð frá leiðbeinendunum (sem eru indversk eins og ég nefndi áðan) um að við eigum að vera tilbúnar eftir 10mínútur, þá þýðir það að við verðum að vera tilbúnar eftir 30-40mínútur. Ég er alltaf tilbúin á réttum tíma og hata að bíða, þannig að þetta hefur reynt mikið á mína þolinmæði. En núna, nokkrum dögum síðar, þá er ég orðin jafn afslöppuð og letidýr.

Ég vakna ofast á undan öllum öðrum og nýt þagnarinnar (það er ekki auðvelt að búa í fjölmennum hænsnakofa). Ég nota tímann í að þvo þvott, hér eru engar þvottavélar svo þvottinn þvoum við í plastfötum sem við erum með í bakgarðinum. Mér finnst gaman að þvo þvottinn á þennan hátt. Það er svolítið eins og að vaska upp, erfitt að byrja en þegar maður er kominn í gang þá er það algjör gæða tími með eigin hugsunum.

Letta, kokkurinn okkar, býr til hádegismat og kvöldverð fyrir okkur á hverjum degi. Hún er ofsalega hugguleg, en maturinn bragðast eins og ég get ýmindað mér að fangelsismatur bragðist. Flestar hinar stelpurnar eru frá Þýskalandi og borða ekki sterkan mat, svo Letta reynir að gera matinn minna sterkan og meira vestrænan, og því miður er hún ekki góð í því. En, þetta er víst bara hluti af upplifuninni, svo ég borða það sem ég fæ með bros á vör og hugsa að þetta verði líklega eitthvað til að hlægja af síðar meir.

Strætóstöðin í Mapusa
Ég get ekki sagt að ég hafi fengir neitt sem hægt er að kalla "menningarsjokk" síðan ég kom hingað. En ég er viss um að ég muni fá að upplifa það þegar ég yfirgef Góu í byrjun desember. Góa er sá hluti Indlands sem er mest vestrænn, og það er sagt að það sé ekki hægt að kalla þetta "ekta" Indland.
Ég er strax komin með mínar föstu rútínur. Á hverju kvöldi sest ég
 í bakgarðinn og skrifa í dagbókina mína.

Mest indverska upplifunin sem ég hef fengið síðan ég kom hingað er að fara í strætó. Strætóarnir eru puntaðir með blómum og jólaljósum. Það virkar þannig að maður verður að hoppa upp í strætóinn eins hratt og maður getur, og stundum er strætóinn á ferð. Ef maður er er MJÖG heppinn þá fær maður sæti, og oftast er maður ekki MJÖG heppinn og þá þarf maður að standa. Gangurinn sem maður stendur í er ca 1 meter breiður, og þegar maður heldur að núna sér virkilega ekki pláss fyrir fleiri í strætónum þá koma 20 manns í viðbótum um borð. Þegar maður ætlar úr strætónum á þarf maður að pressa sér í gegnum fólksfjöldann og vona að maður komist að útganginum áður en keyrt er framhjá stoppinu manns. Einhverjum finnst þetta líklega hljóma skelfilega, en ég ELSKA þetta. Í eitt skiptið var ég bara heppni að ég náði að troða mér inn í strætóinn, og ég kom mér ekki inn í ganginn heldur var mér ýtt uppvið vegginn sem aðskilur "herbergið" sem bílstjórinn situr í, og restina af strætónum. Þetta var um miðjan dag svo það var virkilega heitt úti (og ennþá heitara inni með fólksfjöldanum). Ég var umkringd indverskum konum og mönnum sem störðu á mig líkt og ég væri geimvera. Frábær upplifun !

Í dag förum við með strætó til Panjim. Þar ætlum við að borða GÓÐAN mat og fara í bíó að sjá Bollywood-mynd. Ég hlakka mikið til.


Mér hefur strax tekist að verða veik. Maginn virkar ekki eins og vera ber, og í gær var ég með hita. Mýflugurnar elska mitt íslenska blóð, og flest bitin sem ég fæ bólgna upp og verða jafn stór og gólfkúlur.

Á mánudaginn byrjum við að vinna. ÞAÐ verður spennandi.


fimmtudagur, nóvember 03, 2011

Fyrstu kynni við Indland


Ferðin frá Stavanger til Góu gekk vel, náðum öllum flugum og stoppuðum meira að segja í nokkra tíma í London og skoðuðum Buckhingham Palace og Big Ben.

Samtal sem átti sér stað þegar við sáum Mumbai úr flugvélinni, nývaknaðar og þreyttar:

Begga: "Vá, fullt af blokkum"
Hildur: "Já, þetta er bara eins og breiðholt"
Begga: "Já, nákvæmlega eins og efra breiðholt"

Svo flugum við til Góu, og tókum leigubíl beint til Anjuna Beach. Og ég get sagt ykkur það að Anjuna Beach líkist Nauthólvík ekki neitt !

Við tókum fyrstu og ódýrustu gistinguna sem okkur var boðið (hjá ótrúlega sætri gamallli konu og annari ennþá eldri og sætari). Hér borguðum við 200kr.isl. á mann nóttina (100rupies) og fengum nákvæmlega það sem við borguðum fyrir. Við gistum í kofa sem var að hruni kominn, og klósettið og sturtan var úti. Þegar úti var orðið dimmt þurftum við að fylgja hvor annari á klósettið með vasaljós í farateskinu (þó það sé svosem ekki erfitt að hitta ofan í klósettið þegar það getur skilgreinst sem stór hola í jörðina, en Begga var svo hrædd um að detta ofaní holuna..). Sturtan leit út eins og 100ára gömul sturta, og virkaði eftir því (virkaði semsagt ekki, svo sjampóið var ekki notað þann daginn).
Áður en Begga fann prik handa mér þá var ég vopnuð með blautsérvéttu
Fyrsta kvöldið notuðum við í að borða yndislegan indverskan mat, svitna og horfa á eldingar slá niður í hafið. Þegar við komum tilbaka í fallega húsið okkar ákvað ég að opna bjór handa okkur. Bjór sem Begga hafði hrisst vel í töskunni sinni (og það vissi ég ekki). Bjórinn gusaðist yfir mig alla og herbergið (við höfðum bæði gott af smá sturtu, svo það var ágætt). Þegar ég var að reyna að þurfa upp bjórinn af gólfinu komst ég fljótlega að því að við Begga vorum ekki einar í herberginu. Undir rúminu faldi sig risastór kakkalakki. Þá sá ég strax eftir því að hafa lofað Beggu að ég yrði pöddubaninn alla ferðina. En ég stend við það sem ég lofa. Eftir hálftíma stríð var það að sjálfsögðu íslendingurinn sem vann indverska kakkalakkann, með prik að vopni.

Við vöknuðum snemma á fimmtudagsmorgunn og fundum okkur nýjan samastað. Nú búum við á ströndinni og ætlum að búa hér þartil á sunnudaginn. Í gær lágum við á ströndinni allan daginn og syntum í sjónum, það var heitt og við urðum fljótlega eirðarlausar, svo við endurtökum það ekki í dag. Indverjarnir eru ekki feimnir og segja okkur ótt og títt hvað við erum hvítar (sem er eitthvað sem við gerum okkur fullkomnlega grein fyrir, og vantar ekki að láta minna okkur á). Við segjum þeim að við komum frá landi þarsem sólin aldrei skín, og að búa þar sé hægt að líkja við að búa í Himalaya.
Í gær var ég stoppuð á ströndinni af tveimur inverskum fjölskyldum sem langaði svo ofsalega að taka mynd með mér. Ég varð að sjálfsögðu að þeirri ósk. Fyrst mynd af mér og börnunum, svo mynd af mér og konunum og svo mynd af mér og körlunum osv.frv. Afhverju vildu þau taka mynd með mér ? Vegna þess að ég er svo HVÍT !
Ávaxtakonan sem við kaupum melónu af

Annað sem hefur gerst:


  • Ég er sólbrennd
  • Ég er búin að fá heilagan kúa skít í skóinn
  • Ég er búin að læra að segja 4 setningar á hindí
  • Indversk rúm eru fáránlega hörð, gæti alveg eins sofið á gólfinu
  • Allir í Góu (búandi og ferðamenn) finnst við skrítnar afþví að við notum ekki eiturlyf. Okkur er boðið að kaupa hass jafn oft og við fáum okkur sopa af vatni (nonstop)


  
Við verðum hér á Anjuna Beach þartil á sunnudaginn. Þá förum við til Mapusa þarsem við ætlum að vinna í 4 vikur. Okkur hlakkar mikið til !

Besta vinkona okkar sem finn við geðveikt hvítar og píndi okkur til að gefa henni indverskt litlaputtaloforð um að koma og versla í búðinni hennar.
Heyrumst eftir viku !