Í lok mai sat ég á kaffihúsi með Bergljótu sem er einnig þekkt sem Begga. Við vorum að ræða kosti og galla lífsins og Begga var að ganga í gegnum einhversskonar tilvistarkreppu. Hún var nýlega búin að ákveða að hún ætlaði að flytja aftur til Íslands, en vissi ei hvað gera skildi með næsta árið. Þarna var ég nýlega flutt heim til foreldra minna til að spara pening fyrir ferðinni góðu, og mín lausn við allra manna vangaveltum þær vikurnar var "Komdu með til Indlands". Og það var akkúrat það sem ég sagði við Beggu yfir þessu ógleymanlega kaffibolla (bæði afþví að þetta var ógeðslegt kaffi, og afþví að Begga tók ráði mínu yfir honum), fáum vikum síðar pöntuðum við sitthvorn flugmiðann til Indlands.
Hver er Begga ?
- Hún er fædd á Húsavík eða Akureyri...pottþétt á Íslandi allavega...árið 1986.
- Hún bjó ca 2 ár í Noregi
- Hún hefur aldrei komið útfyrir Evrópu áður, og er búin að finna út hvar öll íslensku sendiráðin í öllum löndunum sem við ætlum til eru og prenta heimilisföngin út á blað.
- Hún á hugsanlega langalangalanga ömmu í Vietnam
(Ég áttaði mig rétt í þessu á því að ég veit afskaplega fátt um Beggu...en ég er viss um að ég mun kynnast henni betur en flestum, á ferðalaginu okkar)
Begga lítur svona út :
 |
| Begga með nýja bakpokann sem hún verslaði sér. Hún keypti stærsta bakpokann sem hún fann svo við getum tekið með okkur heim öll sætu foreldralausu börnin á barnaheimilinu sem við erum að fara að vinna á. |
 |
| Þessa mynd fann Begga uppi á háalofti hjá ömmu sinni. Vegna hattarins og hversu lík þessi kona er Beggu útlitslega, erum við vissar um að Begga eigi langalangalanga ömmu í Víetnam. |
|
3 ummæli:
Sko mig....fann komment takkann:) gamla ég!! En djö væri ég til í að geta komið með !!!kv Gerður
Hefði verið magnað að hafa þig með líka Gerður ! En þú manst, Cuba, vindlar og geit í garðinum...okkar tími mun koma ;)
ójá og ekki gleyma Vegas elskan!!!
Skrifa ummæli