Í dag fór ég í gegnum alla kassa uppá háalofti, og allt safnið í herberginu mínu. Það var ótrúlega gott og gaman. Ég fann ýmislegt, t.d. ástarljóð sem var ort til mín þegar ég var 15ára, bók sem Vikar litli bróðir bjó til handa mér þegar hann var 6 ára og hvorki meira né minna en 15 kveikjara...ásamt öðru. Ég fann ótrúlega margt sem mér hefur greinilega þótt þess virði að eiga og halda uppá áður (margt af þessu dóti hef ég ekki séð í 7ár), en þótti það ekki í þetta sinn. Mörgu var hent, og einhverju safnað saman til að gefa í Hjálpræðisherinn. Ég er nú búin a setja allt niður í kassa nema það sem á að fara í bakpokann.
Sumir segja að þegar maður taki til í kringum sig, þá taki maður til í sálinni í leiðinni. Og það var akkúrat það sem ég gerði í dag. Ég tók til í sálinni, fortíðinni OG heimilinu...ég er viss um að ég muni sofa extra vel í nótt !
Það eru 6 dagar í brottför og ég er opinberlega byrjuð að pakka og hlakka til !
1 ummæli:
Duglegur strákur!!! það er alltaf gaman að fara í gegnum gamalt dót, maður finnur alltaf eitthvað sniðugt:) ég fann einusinni ca 10 blaðsíðna kvörtunarbréf um mig til þáverandi hússtjórnar í blokkinni hjá mömmu þegar ég bjó þar, mér til MIKILLLAR skemmtunar einsog þú getur rétt ímyndað þér:) efast um að ég hafi hent því, vona að ég finni það eh tíman og geti sýnt þér:) tímamótabréf vittu til:) gangi þér vel með ferða undirbúning og ekki gleyma neinu hnoðri minn:) - Gerður
Skrifa ummæli