Ferðin frá Stavanger til Góu gekk vel, náðum öllum flugum og stoppuðum meira að segja í nokkra tíma í London og skoðuðum Buckhingham Palace og Big Ben.
Samtal sem átti sér stað þegar við sáum Mumbai úr flugvélinni, nývaknaðar og þreyttar:
Begga: "Vá, fullt af blokkum"
Hildur: "Já, þetta er bara eins og breiðholt"
Begga: "Já, nákvæmlega eins og efra breiðholt"
Svo flugum við til Góu, og tókum leigubíl beint til Anjuna Beach. Og ég get sagt ykkur það að Anjuna Beach líkist Nauthólvík ekki neitt !
Við tókum fyrstu og ódýrustu gistinguna sem okkur var boðið (hjá ótrúlega sætri gamallli konu og annari ennþá eldri og sætari). Hér borguðum við 200kr.isl. á mann nóttina (100rupies) og fengum nákvæmlega það sem við borguðum fyrir. Við gistum í kofa sem var að hruni kominn, og klósettið og sturtan var úti. Þegar úti var orðið dimmt þurftum við að fylgja hvor annari á klósettið með vasaljós í farateskinu (þó það sé svosem ekki erfitt að hitta ofan í klósettið þegar það getur skilgreinst sem stór hola í jörðina, en Begga var svo hrædd um að detta ofaní holuna..). Sturtan leit út eins og 100ára gömul sturta, og virkaði eftir því (virkaði semsagt ekki, svo sjampóið var ekki notað þann daginn).
| Áður en Begga fann prik handa mér þá var ég vopnuð með blautsérvéttu |
Fyrsta kvöldið notuðum við í að borða yndislegan indverskan mat, svitna og horfa á eldingar slá niður í hafið. Þegar við komum tilbaka í fallega húsið okkar ákvað ég að opna bjór handa okkur. Bjór sem Begga hafði hrisst vel í töskunni sinni (og það vissi ég ekki). Bjórinn gusaðist yfir mig alla og herbergið (við höfðum bæði gott af smá sturtu, svo það var ágætt). Þegar ég var að reyna að þurfa upp bjórinn af gólfinu komst ég fljótlega að því að við Begga vorum ekki einar í herberginu. Undir rúminu faldi sig risastór kakkalakki. Þá sá ég strax eftir því að hafa lofað Beggu að ég yrði pöddubaninn alla ferðina. En ég stend við það sem ég lofa. Eftir hálftíma stríð var það að sjálfsögðu íslendingurinn sem vann indverska kakkalakkann, með prik að vopni.
Við vöknuðum snemma á fimmtudagsmorgunn og fundum okkur nýjan samastað. Nú búum við á ströndinni og ætlum að búa hér þartil á sunnudaginn. Í gær lágum við á ströndinni allan daginn og syntum í sjónum, það var heitt og við urðum fljótlega eirðarlausar, svo við endurtökum það ekki í dag. Indverjarnir eru ekki feimnir og segja okkur ótt og títt hvað við erum hvítar (sem er eitthvað sem við gerum okkur fullkomnlega grein fyrir, og vantar ekki að láta minna okkur á). Við segjum þeim að við komum frá landi þarsem sólin aldrei skín, og að búa þar sé hægt að líkja við að búa í Himalaya.
Í gær var ég stoppuð á ströndinni af tveimur inverskum fjölskyldum sem langaði svo ofsalega að taka mynd með mér. Ég varð að sjálfsögðu að þeirri ósk. Fyrst mynd af mér og börnunum, svo mynd af mér og konunum og svo mynd af mér og körlunum osv.frv. Afhverju vildu þau taka mynd með mér ? Vegna þess að ég er svo HVÍT !
| Ávaxtakonan sem við kaupum melónu af |
Annað sem hefur gerst:
- Ég er sólbrennd
- Ég er búin að fá heilagan kúa skít í skóinn
- Ég er búin að læra að segja 4 setningar á hindí
- Indversk rúm eru fáránlega hörð, gæti alveg eins sofið á gólfinu
- Allir í Góu (búandi og ferðamenn) finnst við skrítnar afþví að við notum ekki eiturlyf. Okkur er boðið að kaupa hass jafn oft og við fáum okkur sopa af vatni (nonstop)
Við verðum hér á Anjuna Beach þartil á sunnudaginn. Þá förum við til Mapusa þarsem við ætlum að vinna í 4 vikur. Okkur hlakkar mikið til !
| Besta vinkona okkar sem finn við geðveikt hvítar og píndi okkur til að gefa henni indverskt litlaputtaloforð um að koma og versla í búðinni hennar. |
Heyrumst eftir viku !
3 ummæli:
ohh þetta hljómar geðveikt spennandi!!! djö væri ég til í að vera með:) en hvað eruð þið að fara að vinna við í 4 vikur??? nú er ég forvitin.
Farið varlega stelpur mínar:) bíð spennt eftir næsta bloggi.
-Gerður
Þetta hljómar bara spennandi ;) Ég hef fulla trú á þér að vera pöddubani ;) Farið varlega ;) hlakka til að sjá næsta blogg ;) LOVJU :***
- Birgitta Maggý
hahahaha snilld að lesa þetta og ævintýrið rétt að byrja, er stolt af þér að geta þetta og meika. Þínar vinkonur Soffía og Eyvör
Skrifa ummæli