Síðasta vikan hefur verið svakalega erfið, bæði fyrir likama, hjarta og sál. Í þessari færslu mun ég segja frá hlutunum alveg eins og þeir eru, svo ekki lesa ef þú vilt ekki vita.
Við vinnum á Mother Theresa heimilinu í Panjim. Þetta heimili er rekið af nunnum og hér búa munaðarlaus börn, ófrískar konur sem hafa þurft að flýja frá fjölskyldunni sinni/hafa verið sendar hingað af fjölskyldumeðlimum vegna komu barns sem ekki er óskað, og eldri konur sem fjölskyldan vill ekki hafa á heimilinu lengur afþví að það er erfitt að sjá um þær. Sum börnin eru líkamlega og andlega fötluð, sumar ófrísku konurnar eru mállausar/heyrnalausar, og gömlu konurnar kljást allar við líkamlega eða andlega sjúkdóma.
Nunnurnar eru sérstök fyrirbæri, og virðast vanta allt sem kallast félagsleg færni. Hinar konurnar sem vinna á Mother Theresa eru góðar konur og aðrar held ég að vanti hjarta.
Þegar við komum til M.T. s.l. mánudag mætti mér sjón sem ég ómögulega hefði getað undirbúið mig fyrir. Það fyrsta sem við gerðum var að hitta börnin. Við gengum inn í stórt dimmt herbergi, og þar inni voru tvær raðir af 7 bláum rimlarúmum úr stáli. Í sumum af rúmunum lágu sofandi, lítil, falleg börn. Inni í stóra herberginu er annað lítið herbergi með 10 rúmum sem standa þétt í þétt, hér liggja nýfæddu börnin.
Nýfæddu börnin fáum við ekki að snerta. Hin börnin eru á aldrinum 3mánaða til 6ára. Þau sem ekki eru nógu gömul til að ganga megum við ekki halda á og knúsa, þau eiga að liggja í rúminu allan daginn og ef þau gráta á að skifta um bleyju eða gefa þeim að borða. Hér eru ekki notaðar pampers, heldur taubleyjur sem hjálpa lítið. Svo ef einhver er búinn að pissa á sig, þá þarf maður að skifta á fötunum líka.
Það eru 3 fjölfötluð börn. Önnur stelpan er stíf í öllum líkamanum, hún getur hvorki sé né talað, en hún heyrir í okkur. Við strjúkum á henni handleggi og kynnar og syngum/tölum við hana reglulega gegnum daginn. Þá brosir hún og hlær...hljóðlaust. Hin stelpan er með líkama sem er snúinn á alla vega, en hún getur gengið á sinn eiginn hátt ef við styðum við hana. Hún skilur ensku, en kann lítið að tala, þó hún sé 6ðara. Hún neitar að borða, og konurnar sem vinna hérna þvinga ofan í hana matinn. Það er hræðilega að vera vitni af því hvernig það er gert. Þær slá með stálskeið í tennurnar hennar, snúa upp á eyrun hennar, lemja, öskra og klýpa hana í kinnarnar. Að sjá slíkt vera gert við lítið saklaust barn, og geta ekkert gert í því, það gefur verk í hjartað. Strákurinn er með vatnshöfuð og pínkulitlar snúnar fætur. Hann er hamingjusamur strákur,hann er alltaf brosandi og elskar tónlist.

Við höfum séð sumar konurnar sem vinna á M.T. slá 3 mánaða gamalt ungabarn, og nunnurnar nota elstu fötluðu stelpuna sem sirkúsdýr þegar gestir koma (þeir sem gefa peningagjafir til M.T. fá að koma og skoða börnin). Við erum með börnunum 3 tíma á dag. Þau sækjast mikið í okkur og vilja láta halda á sér og faðma okkur ótt og títt, þau sína skír merki um vanrækslu. Við leikum við þau, og knúsum og kyssum þau eins mikið og hægt er þessa 3 tíma á dag. Það er erfitt að segja bless við þau í lok samveru, við vitum ekki hvernig er komið fram við þau þegar við erum ekki til staðar.
Í öðrum hluta byggingarinnar búa ca 50 eldri konur. Þær sofa allar saman í risastóru herbergi sem samanstendur af bara rúmum sem öll standa þétt í þétt. Konurnar sitja á bekk allan daginn, hvern dag, og bíða dauðans. Hér hafa þær verið skildar eftir af fjölskyldumeðlimum sem hefur fundist erfitt að sjá um þær. Þá dama sem við höfum verið með eldri konunum hef ég ekki séð einn einasta fjölskyldumeðlim koma í heimsókn. Allar konurnar kljást við einhversskonar andlegan/líkamlegan sjúkdóm. Sumar geta ekki gengið vegna afmyndaðs líkama eða vöntum á útlimum. Það eru til hjólastólar á M.T. , en þessir eru ekki notaðir. Konurnar fá ekki hjálp til að nota salernið, þær skríða sumar á gólfinu, í gegnum hland og skít, inn á "baðherbergið" (hola í gólfið sem falið er á bakvið skítugar gardínur) og vonast til að ná inn á klósett áður en þær þurfa að gera það sem þær þurfa að gera á klósettinu. Sumar konurnar liggja í rúminu allan daginn því enginn hjálpar þeim að komast á fætur. Þær sem kljást við andlega sjúkdóma ganga fram og tilbaka í ganginum og lifa í sínum eigin heimi, þær fá enga hjálp. Konurnar fá mat og drykki, og það er allt.
Á fimmtudaginn gáfum við konunum "spa"-dag. Við keyptum það sem við þurftum til að laga á þeim neglurnar og gefa þeim fótanudd, það fannst þeim gott og gaman.
Ófrísku konurnar fáum við ekki að hitta, nema þegar þær koma til okkar sjálfar. Sumar þeirra eru andlega fatlaðar og hefur verið nauðgað, sumar ganga með stúlkubarn sem ekki er velkomið í fjölskylduna, og sumar konurnar eru yfir fertugt og það mun setja skömm á fjölskylduna að eignast barn á þeim aldri. Ég hitti eina af þessum konum. Ég myndi giska að hún sé ca 16ára og ca 6 mánuði á leið. Hún getur hvorki talað né heyrt. Hún settist hjá mér á bekk, og ég bauð henni fótanudd. Hún nuddaði þá á sér magann og byrjaði að hágráta, ég tók utan um hana og reynda að hugga. Konurnar sem vinna þarna komu þá, 3 stk. , og öskruðu á hana og skömmuðu og drógu hana með inn í herbergi.
Ég var alls ekki undirbúin fyrir að upplifa allt sem ég hef upplifað síðustu daga. Ég er uppgefin og vanmáttug. Mér finnst ég heppin, samtímis er ég með samvikubit.
Að vera gestur í annara grimma veruleika, sem er svo endalaust öðruvísi en minn eiginn, mér er illt allsstaðar, og finn að allt stendur í nýju sjónarhorni.
Á Indlandi er lífið ekki dans á rósum.
2 ummæli:
Af þessari lesningu að dæma virðist lífið kanski ekki vera dans á rósum og ómanneskjulega komið fram við marga einstaklinga, hugsaðu samt hvað ykkar heimsókn í þeirra líf skilur eftir sig hjá þeim og eflaust er það eitthvað sem þau munu alltaf muna eftir :)
Júlíus Róbertsson
Taradist vid thessa færslu hja ther. Thetta setur sko min hversdagslegu vandamal i samhengi. Fallegt hja ykkur ad gefa theim fotanudd, sma tilbreytingu i hrædilegum veruleikanum sem er theirra daglega lif. Verd svo reid ad heyra um svona omanneskjulega medferd a saklausu folki, og eg get imyndad mer ad thad sjodi a minni! En eg elska thig fallega, goda vinkona. Er med ther i anda.
Knus, Eva
Skrifa ummæli