Í dag ákvað ég að vera heima frá verkefninu. Ég er búin að vera mikið kvefuð, hóstandi, með smá hita og eyrnaverk í 6 daga núna, og held ég þurfi að hvíla mig allmennilega til að verða frísk.
Ég er að hugsa um að skifta um verkefni. Hinar stelpurnar sem vinna með mér á Mother Theresa ákváðu að hætta þar, og ég held að það verði of erfitt að sjá um þetta ein. Mér hefur verið boðið að vinna á sjúkrahúsinu í Mapusa. Þetta er stórt sjúkrahús og hér er mikil þörf á aðstoð frá sjálfboðaliðum. Þetta er splunku nýtt verkefni, og ég mun vera ein af þeim fyrstu frá Green Lion að vinna að því. Mér skilst að mér verði kennt að gefa allsskonar sprautur og að sjá um að hreinsa og skifta á sárum og fl.

Um helgina fórum við til Palolem Beach, sem er ca 2,5 tíma akstur frá Assonorra þarsem við búum. Þetta var fullkomin staður til að safna upp orku fyrir komandi viku. Mjúkur sandur, heitur og hreinn sjór. Þetta er miklu fallegri strönd en þær sem eru hérna handan við hornið þarsem við búum. Dagarnir voru langir og notaðir í lítið annað en að slappa af í sólbaði, og borða góðan mat. Ég hata að liggja upp-niður í sólbaði, og keypti mér þess vegna vindsæng. Þá fékk ég sól á kroppinn, samtímis sem ég kældi mig niður í sjónum og lék mér í öldunum.
Ég var ekki viðbúin því hversu kalt það yrði í skúrnum sem við sváfum í yfir næturnar, og tók þessvegna ekki með mér allmennileg föt til að sofa í. Stuttbuxur, hlýrabolur og lakpoki var ekki nóg til að halda á sér hita, svo þó að helgin hafi verið æðisleg þá voru næturnar ekki góðar fyrir heilsuna. Það er kominn vetur hérna núna, svo það verður heldur kalt á nóttunni og svalt á morgnana - en samt 30 gráður í skugga yfir daginn.
Nokkrar myndir frá s.l. vikum:
 |
| Fögnum góðum degi í vinnunni með Kingfisher í bakgarðinum okkar. |
 |
| Túristi á Palolem Beach |
 |
| Á bátsferð. Bjálkarnir sem sjást í sitthvoru horrni á myndinni eru eitthvað sem bátaeigendurnir festa á aðra hlið á bátunum svo auðveldara sé að draga þá upp á land í lok dags. |
 |
| Indverskur matur - létt blanda af hinu og þessu. |
 |
| Við heimsóttum kryddakur. Þar fann ég þennann mann sem rúllaði vindla úr einhverri "hættulegri" plöntu. Ég keypti nokkra vindla til að prófa, þeir voru ekki lengi að enda í ruslatunnunni. |
 |
| Hjólabátur í 40 stiga hita... |
 |
| Undirbý kvöldverð á indverskan hátt. |
 |
| Í strætó |
 |
| Fiskmarkaðurinn. Fiskurinn ligger á bekkjum og svitna í sólinni þartil einhver vill kaupa hann, ef enginn kaupir þá er hann aftur til sölu daginn eftir. Hér lyktar allt alveg hræðilega, og við þurfum að ganga hér í gegn á hverjum degi til og frá vinnu. Á einhvern undarlega hátt byrjaði mér þó að líka að rölta hér í gegn, að sjá sama fólkið og ath. hver er að reyna að selja sama fiskinn dag eftir dag...skrítið hversu fljótt manni finnst maður vera "heima" þegar maður er með fastar rútinur |
 |
| Kjötmarkaðurinn |
 |
| Ávaxtamarkaðurinn. Hér sitja dömurnar og selja ávexti dag inn og dag út. |
 |
| Týpísk bygging í Panjim. En á Indlandi getur maður fundið flest allt, líka "Partý búð" í byggingu sem lýtur út fyrir að bráðum falli hún niður. |
 |
| Æfum yoga-moves í allmenningsgarði snemma morguns. |
 |
| Api að ræna af Beggu. |
 |
| Við heimsóttum "Old Góa". Hér finnur maður margar aldagamlar kaþólskar kirkur. |
 |
Móðr sem kennt hefur dóttur sinni að gera sirkústrix til að þéna pening.
|
2 ummæli:
Það er kominn tími á annað blogg hjá þér fröken. Minnist loforða um blogg að minnsta kosti einu sinni í viku ;)
..svo eru bara 2 mánuðir og 14 dagar í að okkar Hjartar Indlands ævintýri byrjar!
Eva
VÁÁÁ Hildur! Þetta er ekkert smá lesning og það sem þú hefur upplifað mikið á stuttum tíma. Fannst svakalegt að lesa þetta með Mother Theresa heimilið og hvað þá fyrir þig að upplifa þetta :(
En gangi þér vel úti, ég á eftir að vera dugleg að lesa bloggin frá þér :)
Kv, Gunna Mæja frænka
Skrifa ummæli